Fara beint í efni

Tengingar

Talaðu við gögnin. Við tengjum þau.

Gervigreind verður fyrst gagnleg í daglegum rekstri þegar hún þekkir ykkar gögn. Vitinn tengist kerfunum sem þið notið, án þess að gögnin fari úr ykkar umhverfi.

Tengingar sem eru tilbúnar

Hver tenging gefur Vitanum aðgang að einu kerfi, með réttindum þess sem spyr. Tilbúin tenging þarf ekki að smíða: við setjum hana upp í ykkar umhverfi. Veldu flokk til að þrengja listann.

Íslensk gögn

2 tengingar

Það sem greinir Vitann frá almennri gervigreind: íslensk gögn, sótt beint úr íslenskum skrám.

  • Fyrirtækjaskrá

    Upplýsingar um fyrirtæki (Já.is)

    „Hvert er heimilisfang og kennitala Dæmis ehf.?“

    Notað í

  • Ársreikningar RSK

    Ársreikningar íslenskra fyrirtækja

    „Hvernig þróaðist rekstur Dæmis ehf. síðustu þrjú ár?“

Fjármál og rekstur

2 tengingar

Samvinna og skjöl

4 tengingar

Verkbeiðnakerfi og þróun

4 tengingar

Verkfæri

2 tengingar
  • Skjalagerð

    Býr til Word, Excel, PowerPoint og PDF skjöl

    „Settu yfirlitið upp sem glærur fyrir stjórnarfund.“

    Notað í

  • Reiknivél

    Öruggur útreikningur á stærðfræðilegum segðum

    „Hver er meðalvöxtur milli ára í þessum tölum?“

Svona vex virðið

Hvert verkefni nær fullri virkni á þremur til níu mánuðum eftir umfangi innleiðingar, og þau hefjast með tveggja mánaða millibili - einn ferill í einu. Fyrsta árið er því lægra en fullt ár. Það er eðlilegt: innleiðing tekur tíma, og fólk þarf tíma til að átta sig á því hvernig best er að nota hana.

Fyrstu 12 mánuðir

Á ári í fullri virkni

Virði á mánuði, öll valin verkefni samanlögð
MánuðurVirði á mánuði

Valin verkefni

    Grunnurinn er innleiddur einu sinni. Hvert verkefni ofan á bætir við virði fyrir módelkostnaðinn einan. Hvað það þýðir fyrir þitt fyrirtæki reiknum við með þér.

    Útreikningurinn sýnir stærðargráðu, ekki tilboð. Ef sleði hefur verið færður á spjaldi eru það þínar forsendur sem gilda.

    Talaðu við starfsmanna­handbókina

    Starfsfólk fær svör um reglur og verklag beint úr starfsmannahandbókinni, án þess að leita í skjalasafninu. Vitinn vísar í kaflann sem svarið byggir á og fylgir aðgangi þess sem spyr.

    • Orlof, veikindi og leyfi
    • Ferðir, kostnaður og endurgreiðslur
    • Verklag og reglur fyrir nýtt starfsfólk

    Hvernig sæki ég um orlof og hver samþykkir það?

    Vitinn notar: SharePoint

    Þú sækir um orlof í mannauðskerfinu, helst fjórum vikum fyrir fyrsta frídag.

    Næsti yfirmaður samþykkir umsóknina, og sumarorlof þarf að liggja fyrir 1. apríl.

    Starfsmannahandbók, kafli 4.2: OrlofUppfærð 3. mars 2026

    Samningar út frá ykkar sniðmátum

    Vitinn setur saman drög að samningum út frá sniðmátunum ykkar í SharePoint, sækir upplýsingar um viðskiptavininn í fyrirtækjaskrá og skilar Word-skjali. Ábyrgðaraðili yfirfer og samþykkir áður en skrifað er undir.

    • Þjónustu- og verksamningar
    • Viðaukar og breytingar á eldri samningum
    • Samanburður við staðlaða skilmála

    Búðu til nýjan samning fyrir Dæmi ehf. Þau eru að fara í Vitann og ætla að nota Azure.

    SharePointFyrirtækjaskráSkjalagerð

    Drög að þjónustusamningi eru tilbúin, byggð á sniðmátinu ykkar. Kennitala og heimilisfang Dæmis ehf. eru sótt í fyrirtækjaskrá.

    Þjónustusamningur – Dæmi ehf.docx

    Þjónustusamningur um APRÓ Vitann

    Aðilar
    APRÓ og Dæmi ehf.
    Þjónusta
    Uppsetning og rekstur Vitans í Azure-umhverfi Dæmis ehf., innan ESB
    Innskráning
    Aðgangsstýring Dæmis ehf. (single sign-on)
    Gögn
    Í eigu Dæmis ehf., ekki notuð til að þjálfa módel
    Verð
    Fast mánaðarverð samkvæmt tilboði
    Sniðmát: Þjónustusamningur, SharePointTil yfirferðar áður en skrifað er undir.

    Hvernig virkar tengingin?

    Gögnin verða kyrr

    Tengingin les úr kerfunum þegar spurt er. Gögnin eru ekki afrituð til þriðja aðila og eru ekki notuð til að þjálfa módel.

    Réttindi fylgja notandanum

    Vitinn sækir aðeins það sem viðkomandi starfsmaður hefur aðgang að.

    Svör með heimildum

    Þegar svar byggir á innri gögnum vísar Vitinn í skjalið eða færsluna, svo auðvelt er að sannreyna.

    Allt í ykkar umhverfi

    Tengingarnar keyra í ykkar AWS- eða Azure-umhverfi, við hlið Vitans.

    Innskráning og aðgangur

    Starfsfólk skráir sig inn í Vitann eins og í önnur kerfi vinnustaðarins, og þið stýrið aðganginum á einum stað.

    • Sama innskráning og í önnur kerfi, oftast Microsoft Entra eða Google (single sign-on).
    • Aðgangi stýrt eftir hópum, til dæmis þannig að aðeins fjármálasvið sjái fjárhagsgögn.
    • Þegar fólk hættir lokast aðgangurinn sjálfkrafa.

    Opinn staðall, engin læsing

    Tengingarnar byggja á MCP (Model Context Protocol), opnum staðli sem tengir gervigreind við kerfi og gögn. Hver tenging er MCP-þjónn sem lýsir tólunum sínum, og gervigreindin velur réttu tólin út frá því sem beðið er um.

    Ykkar kerfi

    • Business Central
    • Microsoft 365
    • Jira
    • Eigin gagnagrunnar

    MCP-tengingar

    MCP

    Í ykkar eigu og keyra í ykkar umhverfi.

    Módel að eigin vali

    ClaudeChatGPTGemini

    Skiptið um módel, tengingarnar fylgja með.

    Vantar tengingu? Við smíðum hana.

    Við smíðum MCP-tengingar við ykkar eigin kerfi og gagnagrunna. Segðu okkur hvaða kerfi skipta mestu máli og við förum yfir hvernig best er að tengja þau.