Fara beint í efni

Öryggi og gögn

Gögnin þín. Þitt umhverfi. Undir þinni stjórn.

Vitinn er hannaður þannig að þið haldið stjórn á gögnunum: þau eru í ykkar umhverfi, dulkóðuð innan ESB og aldrei notuð til þjálfunar.

Í ykkar umhverfi

Vitinn er sérhýstur (e. single-tenant) í ykkar eigin AWS- eða Azure-umhverfi innan Evrópu. Módelin keyra þar, gögnin fara aldrei þaðan og samtöl, skjöl og tengingar fara ekki í gegnum sameiginlega þjónustu sem aðrir nota. Lausnin uppfyllir íslenskar og evrópskar kröfur um gagnavernd frá fyrsta degi.

Dulkóðun innan ESB

Öll gögn eru dulkóðuð, bæði í geymslu og á leið milli kerfa, og vistuð innan Evrópusambandsins undir ykkar stjórn.

Engin þjálfun á gögnum

Það sem starfsfólk skrifar eða setur inn er ekki notað til að þjálfa gervigreindarmódel, hvorki hjá APRÓ né hjá framleiðendum módelanna.

Aðgangsstýring

Vitinn tengist beint við auðkenniskerfi vinnustaðarins, oftast Microsoft Entra eða Google (single sign-on). Aðgangi, heimildum og teymum er stýrt á einum stað úr ykkar eigin kerfum.

Dulkóðunarlyklar í ykkar höndum

Þið hafið fulla stjórn á dulkóðunarlyklunum. Gögn sem fara inn í Vitann og verða til þar eru aðeins aðgengileg ykkur.

Miðlæg notkunarstýring

Notkun, kostnaði og aðgangi að módelum er stýrt miðlægt, til dæmis með kostnaðarramma og reglum sem þið setjið. Þið setjið kvóta á notanda eða teymi. Notkun módelanna greiðist beint til AWS eða Azure á ykkar eigin reikningi. Þið sjáið hana og stýrið henni í Vitanum.

Síun persónugreinanlegra gagna

Valkvæm viðbót þar sem starfsfólk vinnur með gögn um viðskiptavini, til dæmis í þjónustuveri. Kennitölur, kortanúmer og önnur persónugreinanleg gögn eru greind og falin áður en textinn fer í vinnslu hjá módelinu. Síunin keyrir í ykkar umhverfi.

Persónuvernd og staðlar

Vitinn uppfyllir kröfur persónuverndarlaga (GDPR) og er í samræmi við alþjóðlega öryggisstaðla á borð við ISO, SOC og CSA. Við aðstoðum við að fella uppsetninguna að ykkar öryggisstefnu og áhættumati.

Hver er munurinn á Vitanum og opnum gervigreindar­þjónustum?

Opnar þjónustur APRÓ Vitinn
Hvar eru gögnin? Hjá þjónustu­veitanda, oft utan ESB Í ykkar umhverfi, innan ESB
Þjálfun á gögnum Fer eftir áskrift og stillingum Aldrei
Innskráning Sér aðgangur fyrir hvern notanda Ykkar single sign-on
Tenging við innri kerfi Takmörkuð Já, með ykkar réttindum
Eignarhald Hjá þjónustu­veitanda Hjá ykkur

Förum yfir öryggismálin saman

Við förum yfir hvernig Vitinn fellur að ykkar öryggisstefnu, aðgangsstýringu og áhættumati, áður en nokkur gögn eru tengd.