Fara beint í efni

Um okkur

Íslenskt tæknifólk á bak við gervigreindina.

APRÓ Vitinn er þróaður og rekinn af APRÓ, íslensku hugbúnaðar- og tæknifyrirtæki.

APRÓ er hugbúnaðar- og tæknifyrirtæki sem hjálpar stofnunum og fyrirtækjum að raungera markmið sín. Við hönnum, smíðum og rekum tækni með opinni nálgun þannig að viðskiptavinir læsist aldrei inni í lausnum stakra birgja. Með því að greina og fjarlægja hindranir í vegi markmiða ryðjum við veginn fyrir framþróun og byggjum sveigjanlegar, gagnsæjar lausnir sem eru í eigu viðskiptavina. Rétta tæknin útilokar ekki möguleika, hún opnar þá alla.

Vitinn byggir á sömu hugsun: gervigreind í ykkar umhverfi, tengd ykkar gögnum og í ykkar eigu.

Fólkið bak við Vitann

APRÓ er leiðandi gervigreindarfyrirtæki á Íslandi. Þar starfa um 90 sérfræðingar sem aðstoða fyrirtæki og opinberar stofnanir við að nýta gervigreind, skýjalausnir og nútímalega upplýsingatækni til að ná mælanlegum árangri í rekstri. APRÓ stendur einnig að stærstu gervigreindarráðstefnu landsins.

Vitinn er þróaður af gervigreindarsérfræðingum með fjölda alþjóðlegra vottana.

Við notum Vitann daglega í eigin starfsemi og treystum á hann við okkar störf, rétt eins og viðskiptavinir okkar. Svona gerðum við þetta hjá APRÓ

Vottanir og samstarf

  • AWS Generative AI Competency
  • AWS Rising Star Partner (Norðurlönd)
  • AWS Partner
  • Microsoft Partner
  • Google Cloud Partner
  • Anthropic Partner
  • ISO 27001

Hafa samband

Talaðu við okkur

Hafðu beint samband við okkur sem stöndum að þessu. Við svörum sjálf.

Eða skrifaðu okkur á apro@apro.is