Fara beint í efni

Spurningar

Engar vitlausar spurningar. Bara skýr svör.

Um Vitann

  • Er óhætt að nota viðkvæm fyrirtækjagögn með Claude eða ChatGPT?Öryggi & persónuvernd

    Það fer eftir því hvar og hvernig módelin keyra. Í almennum áskriftum fara gögnin til þjónustu sem þið stýrið ekki, og skilmálarnir ráða hvað verður um þau.

    Í Vitanum keyra módelin í ykkar eigin skýjaumhverfi innan Evrópu. Gögnin eru dulkóðuð, þið hafið dulkóðunarlyklana, og það sem starfsfólk setur inn er ekki notað til að þjálfa módel.

    Nánar um öryggi

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hvað er APRÓ Vitinn?Gervigreind í vinnunni

    Öruggt gervigreindarumhverfi sem keyrir í ykkar eigin skýi (AWS eða Azure) innan Evrópu og byggir á ykkar eigin gögnum og vinnureglum, en ekki bara almennum upplýsingum.

    Starfsfólk fær spjallviðmót sem tengist innri kerfum fyrirtækisins. Þið veljið módelin, eigið gögnin og lausnina, og við aðstoðum við innleiðinguna.

    Nánar um Vitann

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hver er munurinn á APRÓ Vitanum og ChatGPT?Gervigreind í vinnunni

    Helsti munurinn er öryggi. Gögn sem fara inn í Vitann og verða til þar eru aðeins aðgengileg ykkur, með ykkar eigin dulkóðunarlyklum, og hægt er að tryggja að þau séu vistuð innan ESB.

    Að auki keyrir Vitinn í ykkar umhverfi, notar ykkar innskráningu og tengist ykkar gögnum. Verðið er fast á mánuði, ekki á hvern notanda.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hver er munurinn á Vitanum og Microsoft Copilot?Gervigreind í vinnunni

    Þau útiloka ekki hvort annað. Þegar Vitinn keyrir í Azure byggir hann á Microsoft Foundry og keyrir í sama Microsoft-umhverfi, svo mörg fyrirtæki nota bæði.

    Copilot er byggður inn í Microsoft 365 og er bestur þegar vinnan fer fram í Word, Outlook, Teams og Excel. Hann er greiddur sem leyfi á hvern notanda.

    Vitinn keyrir í ykkar eigin umhverfi. Hann hentar þegar:

    • þið viljið velja úr fleiri módelum, til dæmis Gemini eða önnur, og nota það sem hentar hverju verkefni best
    • margir eiga að hafa aðgang, líka verktakar - ekkert leyfisgjald er á hvern notanda, greitt er eftir notkun
    • gögnin eru í kerfum utan Microsoft 365
    • persónugreinanleg gögn á að sía áður en þau fara til módelsins
    • þið viljið sjá hvað hvert verkefni kostar og hverju það skilar

    Copilot fyrir vinnuna inni í Office. Vitinn fyrir allt hitt.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hvað er Microsoft Foundry miðað við Vitann?Gervigreind í vinnunni

    Copilot er tilbúinn í Office. Foundry er smíðaverkstæði. Vitinn í Azure er grunnur byggður í Foundry, tilbúinn til notkunar.

    Copilot er lausn án forritunar. Hann vinnur í Word, Outlook, Teams og Excel, og í Copilot Studio er hægt að setja saman einfalda erindreka án kóða. Microsoft Foundry er umhverfið þar sem forritarar smíða gervigreindarlausnir í kóða - módel, tengingar, aðgangsstýringu og eftirlit, allt byggt og viðhaldið af þróunarteymi.

    Vitinn sameinar hvort tveggja. Í Azure er hann smíðaður í Foundry, en grunnurinn er tilbúinn: viðmót fyrir starfsfólk, aðgangsstýring, síun persónugreinanlegra gagna og yfirsýn yfir kostnað. Þið byrjið á verkefnunum, ekki á grunninum - og þegar þörf er á sérsmíði ofan á er hún unnin í Foundry eins og hvert annað Foundry-verkefni.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hvað kostar Vitinn?Gervigreind í vinnunni

    Fast mánaðarverð sem tekur mið af umfangi, án áskriftargjalds á hvern notanda.

    Grunnuppsetning er innifalin, en notkun módelanna og sérsmíði greiðast sér. Notkun módelanna greiðist beint til AWS eða Azure á ykkar eigin reikningi. Þið sjáið hana og stýrið henni í Vitanum.

    Fá tilboð

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hver greiðir fyrir notkun módelanna?Gervigreind í vinnunni

    Notkun módelanna greiðist beint til AWS eða Azure á ykkar eigin reikningi. Þið sjáið hana og stýrið henni í Vitanum.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hve langan tíma tekur að koma Vitanum upp?Gervigreind í vinnunni

    Það fer eftir umfangi og tengingum. Við förum yfir það í fyrsta samtali.

    Bóka ráðgjöf

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hvað gerist ef við hættum?Gervigreind í vinnunni

    Engin birgjalæsing: umhverfið og gögnin eru í ykkar eigu og verða áfram í ykkar skýjaumhverfi.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hvaða gervigreindarmódel er hægt að nota?Tól & API

    Við uppsetningu veljið þið hvaða módel eru í boði, hvort sem það er Claude, ChatGPT, Gemini eða önnur. Þið getið bætt við eða skipt um módel eftir því sem tækninni fleygir fram, án þess að byrja upp á nýtt.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Getum við stýrt notkun og kostnaði?Öryggi & persónuvernd

    Já. Notkun, kostnaði og aðgangi að módelum er stýrt miðlægt, til dæmis með kostnaðarramma og reglum sem þið setjið.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hver hefur aðgang að kerfinu og er hægt að breyta því?Öryggi & persónuvernd

    Við notum ykkar aðgangsstýringu. Oftast er það Microsoft Entra single sign-on (SSO), en einnig er hægt að nota Google SSO.

    Á bak við tjöldin er tryggt að aðeins viðurkenndir notendur hafi aðgang að tilgreindum gögnum og kerfum, og sveigjanleg heimildastjórnun gerir nákvæmar stillingar mögulegar. Þið getið breytt aðgangi hvenær sem er.

    Tengingar við innri kerfi

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hvernig eru gögnin mín varin? Verða þau notuð til að þjálfa önnur módel?Öryggi & persónuvernd

    Öll gögn eru dulkóðuð, bæði við flutning og í geymslu, og þið hafið fulla stjórn á dulkóðunarlyklunum. Gögnum er aldrei deilt og þau eru aldrei notuð til að þjálfa grunnmódel þjónustunnar.

    Öryggi og gögn

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Fylgir þjónustan almennum öryggisstöðlum?Öryggi & persónuvernd

    Já. Uppsetningin er í samræmi við alþjóðlega öryggisstaðla á borð við ISO, SOC og CSA og uppfyllir kröfur HIPAA og evrópskra persónuverndarlaga (GDPR).

    APRÓ veitir, í samstarfi við AWS og Azure, ítarlega aðstoð við að uppfylla kröfur um regluvörslu miðað við ykkar rekstrarumhverfi.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Við höfum litla reynslu af gervigreind. Hvernig förum við að?Gervigreind í vinnunni

    Við bjóðum bæði ráðgjöf og stuðning við innleiðingu Vitans. Einnig er hægt að fá sérsniðið viðmót sem hentar vinnustaðnum, þar sem viðeigandi gögn eru gerð aðgengileg í gegnum lausnina.

    Sjá notkunardæmi

    Var þetta svar gagnlegt?

Um gervigreind

  • Hvað er erindreki?Gervigreind í vinnunni

    Erindreki er gervigreind sem vinnur verk en svarar ekki bara spurningum: hann sækir gögn úr kerfum, fylgir skrefum og skilar niðurstöðu, innan þeirra heimilda sem honum eru gefnar.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Er verið að svíkjast undan með því að nota gervigreind í vinnunni?Gervigreind í vinnunni

    Við hjá APRÓ sjáum þetta þveröfugt. Gervigreind er eitt magnaðasta verkfæri síðustu áratuga og einfaldar og flýtir fyrir úrlausn bæði einfaldra og flókinna verkefna. Hún er þó fyrst og fremst tæki til að styrkja þá færni og dómgreind sem starfsfólk býr þegar yfir.

    Því skiptir máli að innleiða skýra stefnu og leiðbeiningar um notkunina. Öruggur aðgangur að gervigreind kemur í veg fyrir skuggagervigreind, gagnaleka og aðra öryggisáhættu í rekstri.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Getur gervigreind búið til myndir og hljóð?Mynd- og hljóðgerð

    Já, en það eru yfirleitt aðrar tegundir módela en þau sem skrifa texta. Myndmódel búa til myndir út frá lýsingu, og talmódel breyta tali í texta (talgreining) eða texta í tal (talgerving).

    Málmódel eins og Claude vinna fyrst og fremst með texta. Þau geta lesið og lýst myndum, gröfum og skjölum en búa ekki sjálf til myndir.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Skilur gervigreind íslenskt tal?Mynd- og hljóðgerð

    Talgreining og talgerving fyrir íslensku hafa batnað mikið síðustu ár, meðal annars vegna máltækniáætlunar stjórnvalda. Gæðin ráðast af módelinu og hljóðinu: skýrt tal í rólegu umhverfi gefur mun betri niðurstöðu en upptaka af hávaðasömum fundi. Það borgar sig að prófa á eigin efni áður en ákveðið er að nota tiltekið tól.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hvað er API og hvers vegna skiptir það máli fyrir gervigreind?Tól & API

    API (forritaskil) er leið fyrir kerfi til að tala saman. Gervigreind sem kemst í gegnum API í kerfin ykkar getur sótt upplýsingar og unnið verk, til dæmis flett upp í bókhaldi eða stofnað verkbeiðni, í stað þess að svara bara út frá almennri þekkingu.

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Hvað er MCP?Tól & API

    MCP (Model Context Protocol) er opinn staðall sem tengir gervigreind við kerfi og gögn. Hver tenging lýsir þeim tólum sem hún býður upp á, og gervigreindin velur og notar réttu tólin út frá því sem beðið er um. Af því að staðallinn er opinn fylgja tengingarnar ykkur ef þið skiptið síðar um módel eða viðmót.

    Tengingar Vitans

    Var þetta svar gagnlegt?
  • Getur gervigreind hjálpað við forritun?Tól & API

    Já. Málmódel eru góð í að útskýra kóða og villuboð, skrifa fyrstu drög að föllum og prófum og skjala það sem til er. Forritarinn ber þó áfram ábyrgð á kóðanum: hann les yfir, prófar og ákveður hvað fer í notkun.

    Var þetta svar gagnlegt?

Brennur á þér spurning um gervigreind sem er ekki hér?

Við svörum þér í tölvupósti og bætum svarinu hér við ef spurningin á erindi við fleiri.

Spurningar sem við erum að svara

  • Hvernig keyri ég staðbundið módel án þess að senda gögn í skýið?
  • Hvaða tól hentar best fyrir raddgreiningu á íslensku í dag?