Ráðgjöf
Gervigreindin getur skilað meiru. Við hjálpum ykkur að ná því fram.
Staðan í innleiðingu gervigreindar er ólík milli fyrirtækja og stofnana. Sum eiga nú þegar það sem þarf, önnur þurfa eitt lag í viðbót, og sum eru tilbúin að breyta því hvernig unnið er. Við förum yfir stöðuna með þér og ráðleggjum næsta skref.
Veldu þrep
Skuggagervigreind kortlögð og stefna skrifuð, svo starfsfólk viti innan hvaða ramma það starfar. Leyfin sem eru til staðar duga oft lengra en fólk heldur.
Tillaga okkar Oft þarf ekki að kaupa neitt
Þegar þarfirnar aukast: gögnin unnin í þínu eigin umhverfi í Evrópu, kostnaður sýnilegur og undir stjórn, og verktakar vinna innan þíns ramma.
Tillaga okkar Vitinn
Traustur grunnur og fyrirtækjagögnin aðgengileg með spurningum á mannamáli. Fólk kemst yfir meira á dag.
Tillaga okkar Tengjum gögnin
Ferlarnir eru endurhugsaðir, ekki bara breytt. Stundum borgar sig að byrja upp á nýtt: hvernig liti ferillinn út ef hann væri hannaður í dag? Afkastagetan eykst án jafnmargra nýráðninga, og örari skráning kemur í veg fyrir tekjuleka.
Tillaga okkar Endurhugsum ferlana
Hvar gervigreind fer að skila virði
Þrjú þrep, og flest fyrirtæki eru á milli einstaklings og teymis
1·Einstaklingur
Starfsfólk notar gervigreind í afmörkuð verkefni, sumir með tengingar í kerfi og staka erindreka.
Ávinningurinn fylgir einstaklingnum
2·Teymið
Teymi samnýtir verklag, til dæmis í hugbúnaðarþróun þar sem gervigreind er notuð á ólíkum stigum.
Þekking safnast upp innan rekstrareininga
3·Skipulagsheildin
Ferlarnir endurhugsaðir í kringum gervigreindina, sameiginlegir erindrekar og gervigreindin undir stjórn viðskiptahliðarinnar.
Virðið myndast þvert á fyrirtækið
Erindrekar eru til á öllum þrepum. Munurinn er hvort virðið sem skapast verði samnýtanlegt.
Hvar ertu á leiðinni?
Fyrir fyrirtæki og stofnanir
Fjögur þrep. Þú byrjar þar sem þú ert.
- 01
Leikreglur
Skuggagervigreind kortlögð og stefna skrifuð, svo starfsfólk viti innan hvaða ramma það starfar. Leyfin sem eru til staðar duga oft lengra en fólk heldur.
„Hvaða gögn mega fara í gervigreind - og hver ákveður það?“
Tillaga okkar
Oft þarf ekki að kaupa neitt
- 02
Öruggt lag
Þegar þarfirnar aukast: gögnin unnin í þínu eigin umhverfi í Evrópu, kostnaður sýnilegur og undir stjórn, og verktakar vinna innan þíns ramma.
„Verktakinn notar sín tól - en kóðinn fer ekki um persónulega áskrift.“
Tillaga okkar
Vitinn
- 03
Tengd gögn
Traustur grunnur og fyrirtækjagögnin aðgengileg með spurningum á mannamáli. Fólk kemst yfir meira á dag.
„Hvernig stöndum við gagnvart fjárhagsáætlun í dag?“
Tillaga okkar
Tengjum gögnin
- 04
Virði í rekstri
Ferlarnir eru endurhugsaðir, ekki bara breytt. Stundum borgar sig að byrja upp á nýtt: hvernig liti ferillinn út ef hann væri hannaður í dag? Afkastagetan eykst án jafnmargra nýráðninga, og örari skráning kemur í veg fyrir tekjuleka.
„Tímar sem eru skráðir jafnóðum gleymast ekki - og tími sem gleymist er aldrei reikningsfærður.“
Tillaga okkar
Endurhugsum ferlana
Fyrir hugbúnaðarteymi
Flest teymi nota gervigreind nú þegar. Spurningin er hvort hún sé komin lengra en í ritilinn.
- 01
Aðstoðarmaður
Claude, Codex eða Copilot í ritlinum. Hver og einn verður fljótari, en virðið fylgir einstaklingnum og verklagið er ólíkt milli manna.
„Útskýrðu þessa villu og leggðu til lagfæringu.“
Tillaga okkar
Oft þarf ekki frekari fjárfestingu. Nýtum leyfin sem eru til staðar, t.d. Codex og Claude.
- 02
Sameiginlegt verklag
Umgjörðin nýtt til fulls og tengd verkferlum teymisins: kröfulýsingar, sameiginleg kunnátta og gæðahlið sem allir nota. Námskeið koma teyminu á sama stað.
„Teymið vinnur eftir sömu kröfulýsingu og sömu hliðum - ekki hver eftir sinni aðferð.“
Tillaga okkar
Námskeið og sameiginlegt verklag
- 03
Bestun
Mælt hvað virkar og hvað ekki: hvar breytingar tefjast, hvað þær kosta og hvort tækniskuld safnast upp. Yfirferð verður nýi flöskuhálsinn og hún þarf að vera skipulögð.
„Hvað kostar hver breyting í rekstur - og hvar bíður hún lengst?“
Tillaga okkar
Greinum og mælum
- 04
Erindrekar sem vinna verkið
Þróunarferlið er hannað í kringum erindrekana, ekki öfugt. Þeir grípa verkefni, vinna í einangruðu umhverfi og skila tillögu með prófunum. Sérfræðingur les kóðann og ákveður hvað fer í rekstur.
„Villan er komin með prófaða tillögu að lagfæringu áður en teymið mætir.“
Tillaga okkar
Agentic þróun
Hvernig við hjálpum
Frá fyrsta fyrirlestri til ferla í rekstri. Hver þjónusta á heima á einu þrepi, svo þú tekur aðeins það sem næsta skref kallar á.
Upphafið
Úttekt á stöðunni
Við förum yfir hvar þið eruð á þrepunum: hvaða tól eru í notkun, hvaða gögn skipta máli og hvar virðið liggur. Þið fáið tillögu að næsta skrefi, og stundum er hún að kaupa ekkert.
Þrep 01 · Leikreglur
Fyrirlestrar um gervigreind
Almenn notkun gervigreindar fyrir starfsfólk og stjórnendur: hvað hún gerir vel, hvar hún bregst og hvernig á að nota hana á öruggan hátt.
Þrep 01 · Leikreglur
Ráðgjöf um örugga innleiðingu
Stefna og leikreglur: hvaða gögn má nota, hvar þau eru unnin og hver hefur aðgang. Grunnurinn sem allt annað byggir á.
Þrep 02 · Öruggt lag
Námskeið í Claude, Claude Code og GitHub Copilot
Hagnýt þjálfun með verkefnum úr ykkar daglegu vinnu: Claude fyrir starfsfólk, og Claude Code og GitHub Copilot fyrir hugbúnaðarteymi.
Þrep 03 · Tengd gögn
Undirbúningur gagna
Aðstoð við að gera gögnin tilbúin fyrir gervigreind: hvaða gögn skipta máli, hvar þau eru og hvernig þau tengjast á öruggan hátt.
Þrep 04 · Virði í rekstri
Ferlar og erindrekar
Við endurhugsum einn feril frá grunni, frá greiningu til erindreka í rekstri, og mælum hverju hann skilar.
Ekki breyta ferlinum. Endurhugsaðu hann.
Flestir byrja á því að setja gervigreind ofan á ferlana sem eru til. Þá fer sama vinnan fram, aðeins hraðar, og gömlu flöskuhálsarnir fylgja með. Mesta virðið kemur þegar ferillinn er hugsaður upp á nýtt.
Að breyta ferli
- Gervigreind bætt ofan á núverandi skref
- Sömu handtök, aðeins hraðar
- Skref sem voru til vegna handavinnu standa áfram
Dæmi: tímaskráning
Starfsfólk fær áminningu um að skrá tímana sína og gervigreind hjálpar því að orða færslurnar.
Að endurhugsa ferli
- Byrjað á útkomunni: hvað þarf að gerast, og hvers vegna
- Skref sem voru aðeins til vegna handavinnu hverfa
- Fólk vinnur þar sem dómgreind skiptir máli, erindrekar sjá um restina
Dæmi: tímaskráning
Tímarnir verða til úr dagatali, verkbeiðnum og kóða. Starfsmaðurinn staðfestir í lok dags, og ekkert gleymist.
Stundum er besta leiðin að byrja upp á nýtt. Ef ferillinn væri hannaður í dag, með þeim tólum sem eru til, hvernig liti hann út?
Við byrjum ekki á því að selja þér eitthvað
Samtal
Við förum yfir hvar þú stendur og hvar sársaukinn liggur.
Greining
Einn ferill eða eitt teymi kortlagt eins og það er í dag, og hvernig það liti út ef það væri hannað í dag.
Tillaga
Hvað er hægt að gera, hvað ekki, hvað það kostar og hverju það skilar. Stundum er tillagan að kaupa ekkert.
Framkvæmd
Ef þú heldur áfram förum við með ferilinn alla leið. Við skilum ekki skýrslu.
Útkoman er niðurstaða greiningarinnar, ekki forsenda hennar.
Tæknin er minnsti hlutinn
Árangursrík innleiðing gervigreindar byggir að mestu á fólki og ferlum, en aðeins að litlu leyti á tækninni sjálfri. Þess vegna byrjum við á stöðunni hjá þér en ekki á vörunni.
Hvar stendur þú?
Hálftíma samtal dugar oft til að sjá hvaða þrep á við og hvort næsta skref kostar eitthvað.
Talaðu við okkur
Hafðu beint samband við okkur sem stöndum að þessu. Við svörum sjálf.

Andri Örvar Baldvinsson
andriorvar@apro.is
Páll Jónsson
pall@apro.is
Hlöðver Þór Árnason
hlodver@apro.is
Eða skrifaðu okkur á apro@apro.is