Fyrir allt starfsfólk
Texti og samskipti Drög að tölvupóstum, tilkynningum, fundargerðum og skýrslum. Vitinn lagar málfar, styttir og breytir tóni, á íslensku eða ensku.
Gerðu drög að tilkynningu til starfsfólks um nýja orlofsskráningu.
Vitinn notar:
Frá og með 1. mars skráið þið orlof í mannauðskerfinu í stað tölvupósts til yfirmanns.
Yfirmaður fær tilkynningu og samþykkir þar. Spurningar fara til mannauðs.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Aðrir hafa mælt 3% af vinnutímanum · Danmörk
Rannsókn á um 25.000 starfsmönnum á 7.000 dönskum vinnustöðum: notendur spjallmenna sögðust spara að meðaltali 2,8 prósent vinnutímans. Engin mælanleg áhrif fundust á laun eða vinnustundir. Almenn notkun skilar sér, en hún breytir ekki rekstrinum ein og sér.
NBER · BFI
Fyrir allt starfsfólk
Samantektir Settu inn langt skjal, samning eða fundargögn og fáðu helstu atriði, ákvarðanir og opnar spurningar á nokkrum sekúndum.
Hver eru helstu atriðin og opnu spurningarnar í þessum fundargögnum?
Vitinn notar:
Þrjú atriði: fjárhagsáætlun næsta árs, ráðning í tvær stöður og nýr birgir.
Opið: hver ber ábyrgð á innleiðingu nýja kerfisins, og hvenær.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Aðrir hafa mælt 26 mínútur á dag · Breska stjórnsýslan
Tuttugu þúsund ríkisstarfsmenn fengu Copilot í þrjá mánuði og sögðust spara 26 mínútur á dag að meðaltali - nærri tvær vikur á ári. Mælingin hjá breska skattinum var hógværari, tvö til þrjú prósent vinnuvikunnar, og 17 prósent sögðust ekkert spara. Leyfin skila, en hóflega. Stóra stökkið kemur þegar tólið tengist gögnum og ferlum.
GOV.UK · HMRC · GeekWire
Fyrir allt starfsfólk
Þýðingar Milli íslensku og ensku (og fleiri tungumála), með tilliti til samhengis og fagorða ykkar.
Þýddu þessa skilmála yfir á ensku og haltu fagorðunum okkar.
Vitinn notar:
Þýðingin er tilbúin. Fagorðin úr orðalistanum ykkar halda sér, t.d. „þjónustustig“ → „service level“.
Tvö hugtök eru merkt til yfirferðar, því þau eiga sér ekki skýra samsvörun.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Fyrir allt starfsfólk
Hugmyndavinna og undirbúningur Spurningar fyrir viðtal, uppbygging kynningar, rök með og á móti tillögu.
Settu upp spurningar fyrir starfsviðtal við verkefnastjóra.
Vitinn notar:
Átta spurningar í þremur flokkum: reynsla af verkefnastjórn, samskipti við hagaðila og hvernig viðkomandi bregst við þegar áætlun fer úr skorðum.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Aðrir hafa mælt 25% hraðar - eða 19 stigum verri · BCG og Harvard
758 ráðgjafar BCG fengu GPT-4. Í verkefnum sem tæknin réð við kláruðu þeir 12 prósent fleiri verkefni, 25 prósent hraðar og með yfir 30 prósent betri gæðum. Í verkefni utan getu hennar voru þeir 19 prósentustigum ólíklegri til að komast að réttri niðurstöðu. Að vita hvar mörkin liggja er hluti af leikreglunum.
Harvard Business School
Fyrir allt starfsfólk
Fundargerðir og eftirfylgni Fundargerðin verður til strax eftir fundinn, með ákvörðunum og verkefnum sem hver og einn ber ábyrgð á.
Gerðu fundargerð úr þessari upptöku og listaðu verkefnin.
Vitinn notar:
Fundargerðin er tilbúin: tvær ákvarðanir og fimm verkefni.
Anna: drög að tilboði fyrir föstudag. Jón: bóka fund með birgi í næstu viku.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
60 klst. á ári
5 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Fundir á mánuði 10 Dæmi: 10 fundir á mánuði, 30 mín. hver
Áætlaður módelkostnaður: 6 þús. kr. á ári
Fyrst: Fundargerðin er tilbúin straxsést á: Tími í frágang Síðan: Verkefni úr fundum gleymast ekkisést á: opin verkefni Til lengri tíma: Ákvarðanir komast hraðar til framkvæmdasést á: tími frá ákvörðun í framkvæmd Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Aðrir hafa mælt Klukkustund á dag - fyrir suma · Ástralska ríkið
Yfir 7.600 starfsmenn ástralska ríkisins fengu Copilot í hálft ár árið 2024. Notendur töldu sig spara um klukkustund á dag í samantektum, drögum og leit, og 86 prósent vildu halda áfram. En aðeins um þriðjungur notaði tólið daglega, og allt að 7 prósent sögðu það lengja verkin því yfirferð á svörunum át upp sparnaðinn.
ACS Information Age · DTA
Fyrir allt starfsfólk
Leit í innri þekkingu Vitinn leitar í handbókum, verklagsreglum og skjalasöfnum og vísar í heimildina, svo starfsfólk þarf ekki að vita hvar skjalið liggur.
Hvert er ferlið við endurgreiðslu?
Vitinn notar: SharePoint, Confluence
Viðskiptavinur sækir um endurgreiðslu innan 30 daga frá kaupum.
Þjónustuver staðfestir kaupin og fjármál greiða út innan fimm virkra daga.
Verklagsreglur, kafli 7.1: Endurgreiðslur
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Confluence Síður, rými og þekkingargrunnur Allar tengingar Aðrir hafa mælt 98% ráðgjafateyma · Morgan Stanley
Morgan Stanley tengdi aðstoðarmann við um 100.000 innri skýrslur og skjöl fyrir fjármálaráðgjafa sína, og 98 prósent ráðgjafateyma hafa tekið hann upp. Svörin byggja á gögnum fyrirtækisins sjálfs, ekki almennum upplýsingum af netinu.
Morgan Stanley · CNBC
Fyrir allt starfsfólk
Spurt beint í gögnin Spurt á mannamáli beint í skjöl og þekkingu fyrirtækisins, í SharePoint eða öðrum þekkingarsöfnum, og svarið vísar í heimildina.
Hvaða verkefni unnum við fyrir Dæmi ehf. í fyrra og hver stýrði þeim?
Vitinn notar: SharePoint, eða hvaða þekkingarsafn sem er
Þrjú verkefni: nýr vefur (Anna), samþætting við bókhald (Jón) og ráðgjöf um öryggi (Sigríður).
Lokaskýrslur allra þriggja eru í verkefnasafninu.
SharePoint · Verkefnasafn / Dæmi ehf.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Fyrir allt starfsfólk
Fræðsluaðstoðarmaður Aðstoðarmaður tengdur fræðsluefni fyrirtækisins, svo sem námskeiðum, handbókum og leiðbeiningum. Starfsfólk spyr spurninga og fær svör byggð á ykkar eigin efni, með vísun í heimildina.
Erum við með leyfð gervigreindarforrit og stefnu?
Vitinn notar: SharePoint
Já. Leyfð tól eru Vitinn og Microsoft Copilot. Stefnan segir að viðkvæm gögn fari aðeins inn í Vitann.
Gervigreindarstefna, útgáfa 2
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Fjármál
Staða gagnvart áætlun Staðan gagnvart fjárhagsáætlun eftir deildum og verkefnum, hvenær sem er, án þess að bíða eftir mánaðaruppgjöri.
Hvernig stöndum við gagnvart fjárhagsáætlun í dag?
Vitinn notar: Business Central
Rekstrarkostnaður er 3% undir áætlun á árinu. Markaðsmál eru 8% yfir, vegna sýningar í september.
Business Central · fjárhagsáætlun 2026
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir Allar tengingar Fjármál
Sjóðstreymi Yfirsýn yfir inn- og útgreiðslur næstu vikna út frá útistandandi reikningum og skuldbindingum.
Hvernig lítur sjóðstreymið út næstu sex vikurnar?
Vitinn notar: Business Central
Jákvætt allar vikurnar nema viku 44, þegar launagreiðslur og virðisaukaskattur falla saman.
Þrír stórir reikningar eru útistandandi og á gjalddaga fyrir þann tíma.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir Allar tengingar Fjármál
Skýringar á frávikum Vitinn finnur hvaða færslur skýra frávik frá áætlun og leggur til drög að skýringum í greinargerð.
Af hverju er launakostnaður 6% yfir áætlun í þriðja ársfjórðungi?
Vitinn notar: Business Central
Tvær ráðningar komu fyrr en áætlað var og yfirvinna jókst í ágúst.
Drög að skýringu fyrir greinargerðina fylgja.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir Allar tengingar Fjármál
Spurt beint í fjárhagsgögnin Spurningar um tölur úr fjárhagskerfinu á mannamáli. Samantektir sem tóku klukkustundir taka mínútur, svo hægt er að skoða stöðuna vikulega.
Hvernig þróaðist sala í flokki X síðustu sex mánuði?
Vitinn notar: Business Central
Sala í flokki X jókst um 12% á tímabilinu, mest í mars og apríl.
Tveir viðskiptavinir standa fyrir helmingi aukningarinnar.
Business Central · sala eftir vöruflokkum
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
384 klst. á ári
32 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Starfsmenn 2 Dæmi: 2 starfsmenn, 16 klst. á mánuði hver. Framúrkeyrsla sem stöðvast er ekki reiknuð
Áætlaður módelkostnaður: 87 þús. kr. á ári
Fyrst: Samantekt sem tók klukkustundir tekur mínútursést á: Tími í samantekt Síðan: Staðan skoðuð vikulega og hægt að hugsa út fyrir boxiðsést á: tíðni yfirferðar Til lengri tíma: Frávik grípast fyrrsést á: frávik frá áætlun Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Fjármál
Flokkun og afstemming reikninga Innsendir reikningar eru flokkaðir á rétta lykla og bornir saman við pantanir, svo færri handfærslur þarf.
Hvaða reikningar frá vikunni passa ekki við pöntun?
Vitinn notar: Business Central
Fjórir af 312. Tveir eru með annað magn en pöntunin og tveir vantar pöntunarnúmer.
Hvað þarf til Vitinn + sérsmíðiVitinn, tengingar og aðstoðarmaður eða erindreki smíðaður sérstaklega fyrir verkið.
Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
240 klst. á ári
20 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Reikningar á mánuði 300 Dæmi: 300 reikningar á mánuði, 4 mín. sparaðar á hvern
Áætlaður módelkostnaður: 36 þús. kr. á ári
Fyrst: Færri handfærslursést á: Handfærslur Síðan: Tími sem fer í uppgjör á mánaðarlokum styttistsést á: dagar í uppgjör Til lengri tíma: Teymið vinnur í öðrum verkefnum frekar en innslætti, og fjármálateymið helst nett með lítilli yfirbyggingusést á: hlutfall greiningarvinnu Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Fjármál
Reikningsfært í samræmi við samninga Reikningar eru bornir saman við samninga áður en þeir fara út, svo gleymdir liðir og úrelt verð finnast strax.
Eru reikningar mánaðarins í samræmi við samningana?
Vitinn notar: Business Central, SharePoint
Tveir reikningar víkja frá: annar vantar vísitöluhækkun frá janúar, hinn rukkar ekki fyrir aukaþjónustu sem samningurinn nær yfir.
Hvað þarf til Vitinn + sérsmíðiVitinn, tengingar og aðstoðarmaður eða erindreki smíðaður sérstaklega fyrir verkið.
Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
2,7 m.kr. á ári
225 þús. kr. á mánuði
Bein áhrif á afkomu
Reikningar á mánuði 75 Dæmi: 75 reikningar á mánuði, 2% með vanreikningsfærðum lið, 150.000 kr. að meðaltali
Áætlaður módelkostnaður: 18 þús. kr. á ári
Fyrst: Reikningar bornir saman við samninga áður en þeir fara útsést á: Frávik á reikningum Síðan: Gleymdir liðir og úrelt verð finnast straxsést á: leiðréttingar Til lengri tíma: Tekjur leka ekki og verðhækkanir skila sérsést á: tekjur sem nást inn Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Þjónustuver
Stuðningur við þjónustuver Drög að svörum til viðskiptavina byggð á fyrri málum, skilmálum og vöruupplýsingum. Starfsmaðurinn yfirfer og sendir. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).
Gerðu drög að svari við þessari fyrirspurn út frá skilmálunum okkar.
Vitinn notar: Zendesk, SharePoint
Drög: „Takk fyrir fyrirspurnina. Samkvæmt skilmálum okkar getur þú skilað vörunni innan 30 daga…“
Byggt á skilmálum, grein 4, og tveimur sambærilegum málum.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
Zendesk Þjónustubeiðnir, biðraðir og viðskiptavinir SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Aðrir hafa mælt 15% fleiri mál á klukkustund · Þjónustuver
Yfir 5.000 þjónustufulltrúar fengu aðstoðarmann byggðan á fyrri samtölum fyrirtækisins. Þeir leystu 15 prósent fleiri mál á klukkustund að meðaltali, og óreyndir starfsmenn um 30 prósent fleiri. Þeir reyndustu græddu lítið. Þekking þeirra bestu varð aðgengileg öllum.
NBER · arXiv
Þjónustuver
Samantekt á sögu máls Fulltrúinn sér sögu málsins á sekúndum, svo viðskiptavinurinn þarf ekki að endurtaka sig. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).
Hver er saga þessa máls?
Vitinn notar: Zendesk
Þriðja samband á tveimur vikum vegna sömu sendingar. Ný sending var lofuð 3. október en hefur ekki farið af stað.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
Zendesk Þjónustubeiðnir, biðraðir og viðskiptavinir Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
180 klst. á ári
15 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Mál á mánuði 300 Dæmi: 300 mál á mánuði, 3 mín. sparaðar á hvert
Áætlaður módelkostnaður: 36 þús. kr. á ári
Fyrst: Fulltrúinn sér sögu málsins á sekúndumsést á: Tími á mál Síðan: Viðskiptavinurinn þarf ekki að endurtaka sigsést á: endurteknar fyrirspurnir Til lengri tíma: Færri kvartanir og meiri hollusta viðskiptavinasést á: brottfall Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Þjónustuver
Spjallmenni sem svarar fyrirspurnum Spjallmenni svarar einföldum fyrirspurnum viðskiptavina allan sólarhringinn og vísar flóknari málum til starfsfólks. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).
Hvenær kemur pöntunin mín?
Vitinn notar: SharePoint, eða hvaða þekkingarsafn sem er
Pöntunin þín fór frá lager í gær og er væntanleg á fimmtudag.
Viltu fá tilkynningu þegar hún er komin í dreifingu?
Hvað þarf til Vitinn + sérsmíðiVitinn, tengingar og aðstoðarmaður eða erindreki smíðaður sérstaklega fyrir verkið.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
360 klst. á ári
30 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Mál á mánuði 750 Dæmi: 750 mál á mánuði, 40% leyst, 6 mín. hvert
Áætlaður módelkostnaður: 225 þús. kr. á ári
Fyrst: Einföldum fyrirspurnum fækkarsést á: Leyst án manneskju Síðan: Starfsfólkið fær tíma í flóknari málsést á: úrlausn í fyrstu snertingu Til lengri tíma: Betri þjónusta og hollusta viðskiptavina eykstsést á: brottfall Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Aðrir hafa mælt Úr 11 mínútum í tvær · Klarna
Erindreki tók við tveimur þriðju af þjónustuspjalli Klarna fyrsta mánuðinn og úrlausnartími fór úr 11 mínútum í undir tvær. Síðar réð fyrirtækið aftur fólk í flóknari mál. Virðið var raunverulegt - en það þurfti manneskju þar sem dómgreind skiptir máli.
HubSpot
Þjónustuver
Greining skjala í málum Vitinn fer yfir skjöl sem fylgja máli, til dæmis tjónaskjöl, umsóknir eða reikninga, dregur út það sem skiptir máli og bendir á það sem vantar.
Hvað vantar í þessa umsókn?
Vitinn notar: SharePoint
Umsóknin er nánast fullbúin. Það vantar staðfestingu á heimilisfangi og undirskrift á síðu 3.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Mannauður
Móttaka nýliða Nýtt starfsfólk spyr spurninga um ferla, kerfi og stefnur og fær svör byggð á ykkar eigin gögnum.
Hvernig skrái ég orlof og hver samþykkir það?
Vitinn notar: SharePoint
Þú sækir um orlof í mannauðskerfinu, helst fjórum vikum fyrir fyrsta frídag.
Næsti yfirmaður samþykkir umsóknina, og sumarorlof þarf að liggja fyrir 1. apríl.
Starfsmannahandbók, kafli 4.2: Orlof
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
140 klst. á ári
12 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Nýliðar á ári 4 Dæmi: 4 nýliðar, 2 vikum fyrr, 50% afkastabil, 350.000 kr. á viku. Brotthvarf sem forðast er ekki reiknað
Áætlaður módelkostnaður: 49 þús. kr. á ári
Fyrst: Nýliðinn fær svör strax, án þess að trufla samstarfsfólksést á: Tími að fullum afköstum Síðan: Afköst koma fyrrsést á: upplifun af móttöku Til lengri tíma: Betri fyrsta upplifun og minni líkur á að hann leiti annaðsést á: brottfall fyrsta árið Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Mannauður
Svör úr starfsmannahandbók Svör við spurningum um kjör og stefnur, svo færri endurteknar spurningar berast mannauði og allir fá sama svar.
Hvað segir starfsmannastefnan um fjarvinnu?
Vitinn notar: SharePoint
Starfsfólk getur unnið heima allt að tvo daga í viku í samráði við yfirmann.
Teymisdagar eru á þriðjudögum og þá mæta allir.
Starfsmannastefna, kafli 3: Fjarvinna
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
60 klst. á ári
5 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Fyrirspurnir á mánuði 30 Dæmi: 30 fyrirspurnir á mánuði, 10 mín. hver
Áætlaður módelkostnaður: 5 þús. kr. á ári
Fyrst: Færri endurteknar spurningar til mannauðssést á: Fyrirspurnir Síðan: Allir fá sama svar á sekúndumsést á: svartími Til lengri tíma: Mannauður sinnir þróun fólks frekar en svörumsést á: hlutfall þróunarvinnu Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Lögfræði og regluvarsla
Yfirlestur samninga Frávik frá stöðluðum skilmálum eru merkt sjálfkrafa, svo lögfræðingurinn les það sem skiptir máli.
Hvar víkur þessi samningur frá stöðluðu skilmálunum okkar?
Vitinn notar: SharePoint
Á þremur stöðum: ábyrgðartakmörkun er hærri, uppsagnarfrestur styttri og lögsaga er erlend.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
113 klst. á ári
9 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Samningar á ári 75 Dæmi: 75 samningar, 1,5 klst. sparaðar á hvern, 18.000 kr. Áhættan sem minnkar er ekki reiknuð
Áætlaður módelkostnaður: 23 þús. kr. á ári
Fyrst: Frávik frá stöðluðum skilmálum merkt sjálfkrafasést á: Tími á samning Síðan: Lögfræðingurinn les það sem skiptir málisést á: frávik fundin Til lengri tíma: Samningar klárast fyrrsést á: atvik eftir undirskrift Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Lögfræði og regluvarsla
Samanburður útgáfa Tvær útgáfur af samningi eða reglum bornar saman og breytingarnar útskýrðar á mannamáli.
Hver er munurinn á þessum tveimur útgáfum samningsins?
Vitinn notar:
Fjórar breytingar. Sú sem skiptir mestu: greiðslufrestur fer úr 30 dögum í 45.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Lögfræði og regluvarsla
Fyrirspurnir í innri reglur Svör á mínútum í stað þess að leita í og skilja stórar handbækur, með vísun í reglurnar sjálfar.
Má ég taka við gjöf frá birgi?
Vitinn notar: SharePoint, Confluence
Já, ef verðmætið er undir 10.000 kr. og þú skráir hana. Annars þarf samþykki regluvarðar.
Siðareglur, kafli 5: Gjafir og boð
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Confluence Síður, rými og þekkingargrunnur Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
120 klst. á ári
10 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Fyrirspurnir á mánuði 30 Dæmi: 30 fyrirspurnir á mánuði, 20 mín. hver
Áætlaður módelkostnaður: 9 þús. kr. á ári
Fyrst: Svör á mínútum í stað þess að leita í og skilja stórar handbækursést á: Svartími Síðan: Færri fyrirspurnir til regluvörslusést á: fyrirspurnir Til lengri tíma: Betri fylgni og skilningur á reglum í gildisést á: frávik í úttekt Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Lögfræði og regluvarsla
Samningagerð Drög að samningum út frá ykkar eigin sniðmátum, með upplýsingum um viðskiptavininn úr fyrirtækjaskrá. Ábyrgðaraðili yfirfer áður en skrifað er undir.
Búðu til nýjan samning fyrir Dæmi ehf. Þau eru að fara í Vitann og ætla að nota Azure.
Vitinn notar: SharePoint, Fyrirtækjaskrá, Skjalagerð
Samningurinn er tilbúinn úr sniðmátinu „Þjónustusamningur“, með heimilisfangi og kennitölu Dæmis ehf. úr fyrirtækjaskrá og Azure-viðauka.
Þjónustusamningur - Dæmi ehf.docx
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Fyrirtækjaskrá Upplýsingar um fyrirtæki (Já.is) Skjalagerð Býr til Word, Excel, PowerPoint og PDF skjöl Allar tengingar Sala og markaðsmál
Svör við fyrirspurnum fyrir kaup Viðskiptavinir fá svar á mínútum, líka utan opnunartíma, byggt á vöruupplýsingum og lagerstöðu, svo færri hætta við áður en þeir kaupa.
Passar þessi varahlutur í árgerð 2019?
Vitinn notar: Business Central, SharePoint
Já, hann passar í árgerðir 2017-2021. Tvö stykki eru til á lager og afhending er á morgun.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir SharePoint Svæði, skjalasöfn og listar Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
3,6 m.kr. á ári
300 þús. kr. á mánuði
Bein áhrif á afkomu
Fyrirspurnir á mánuði 100 Dæmi: 100 fyrirspurnir á mánuði, 2 prósentustigum fleiri kaupa, 150.000 kr. framlegð á sölu
Áætlaður módelkostnaður: 30 þús. kr. á ári
Fyrst: Svar á mínútum, líka utan opnunartímasést á: Svartími Síðan: Færri hætta við áður en þeir kaupasést á: hlutfall sem kaupir Til lengri tíma: Fleiri fyrirspurnir verða að sölusést á: sala Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Aðrir hafa mælt 812 kanadadalir · Air Canada
Spjallmenni Air Canada sagði farþega að hann gæti sótt um sorgarafslátt eftir á, sem var rangt. Úrskurðaraðili í Bresku Kólumbíu dæmdi flugfélagið ábyrgt árið 2024: fyrirtækið ber ábyrgð á því sem spjallmennið segir. Upphæðin var lítil en lærdómurinn stór. Leikreglur og prófanir koma á undan því að gervigreind tali við viðskiptavini.
BCCRT · CBC
Sala og markaðsmál
Undirbúningur fyrir viðskiptavinafundi Samantekt um viðskiptavininn er tilbúin fyrir fundinn: viðskiptasaga, opin mál og síðustu samskipti.
Taktu saman viðskiptasögu Dæmis ehf. fyrir fundinn á morgun.
Vitinn notar: Microsoft 365, Business Central
Viðskiptavinur í fjögur ár. Kaup jukust um 20% á árinu. Eitt opið mál: seinkun á afhendingu í september.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
Microsoft 365 Dagatal, Outlook, Teams og OneDrive Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
276 klst. á ári
23 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Viðskiptastjórar 2 Dæmi: 2 viðskiptastjórar, 3 klst. á viku hver, 12.000 kr. Aukin viðskipti eru ekki reiknuð
Áætlaður módelkostnaður: 87 þús. kr. á ári
Fyrst: Samantekt um viðskiptavininn tilbúin fyrir fundinnsést á: Tími í undirbúning Síðan: Viðskiptastjórar ná að sinna fleiri viðskiptavinumsést á: fundir á mánuði Til lengri tíma: Viðskiptavinir biðja um meira og eru lengursést á: vöxtur og brottfall Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Upplýsingatækni
Innra þjónustuborð Aðstoðarmaður sem leysir algengustu málin, eins og lykilorð, aðgang, prentara og uppsetningu, og léttir þannig álagi af upplýsingatæknideildinni svo hún geti einbeitt sér að flóknari verkefnum.
Hvernig tengist ég VPN-inu heiman frá?
Vitinn notar: Jira
Opnaðu VPN-forritið, veldu „Heimavinna“ og skráðu þig inn með vinnuaðganginum.
Ef það virkar ekki stofna ég beiðni til upplýsingatækni.
Hvað þarf til Vitinn + sérsmíðiVitinn, tengingar og aðstoðarmaður eða erindreki smíðaður sérstaklega fyrir verkið.
Jira Mál, verkefni og Service Desk Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
158 klst. á ári
13 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Beiðnir á mánuði 150 Dæmi: 150 beiðnir á mánuði, 35% leyst, 15 mín. hver
Áætlaður módelkostnaður: 45 þús. kr. á ári
Fyrst: Algengar beiðnir leysast sjálfvirktsést á: Sjálfvirk úrlausn Síðan: Tæknifólk fær tíma í flóknari málsést á: biðtími Til lengri tíma: Færri truflanir í rekstrisést á: atvik Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Upplýsingatækni
Skjölun eldri kerfa Fyrsta lýsingin á gömlu kerfi verður til úr kóðanum, svo nýtt fólk þarf ekki að spyrja þann eina sem veit.
Hvað gerir launakeyrslan og hvaðan fær hún gögnin?
Vitinn notar: GitHub, Confluence
Keyrslan sækir tíma úr Tempo á miðnætti, reiknar laun eftir kjarasamningstöflu og skrifar skrá fyrir bankann.
Lýsingin er komin í Confluence til yfirferðar.
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
GitHub Kóðasöfn, pull requests og virkni Confluence Síður, rými og þekkingargrunnur Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
138 klst. á ári
12 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Klst. á viku 3 Dæmi: 3 klst. á viku, 12.000 kr. Kostnaðurinn ef hann fer er ekki reiknaður
Áætlaður módelkostnaður: 230 þús. kr. á ári
Fyrst: Fyrsta lýsingin á gömlu kerfi verður tilsést á: Skjalfest kerfi Síðan: Nýtt fólk þarf ekki að spyrja þann eina sem veitsést á: fyrirspurnir á lykilfólk Til lengri tíma: Minni lykilmannaáhættasést á: tími að afköstum Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Aðrir hafa mælt 4.500 forritaraár · Amazon
Amazon notaði gervigreind til að uppfæra Java-kerfi sín. Meðaluppfærsla fór úr um 50 forritaradögum í nokkrar klukkustundir, yfir helmingur framleiðslukerfanna var uppfærður á innan við hálfu ári og ávinningurinn metinn um 260 milljónir dala á ári. 79 prósent sjálfvirkt gerðra breytinga fóru óbreyttar í gegnum yfirferð.
Andy Jassy (LinkedIn)
Upplýsingatækni
Verktakar í hugbúnaðarþróun Verktakar vinna með gervigreindartólin sem þeir þekkja, eins og Claude Code, Codex eða OpenCode, en gervigreindin keyrir í gegnum ykkar umhverfi. Kóðinn og gögnin fara ekki um persónulegar áskriftir, aðgangur fylgir ykkar aðgangsstýringu og lokast þegar verkefninu lýkur.
Farðu yfir villuna í greiðsluflæðinu og leggðu til lagfæringu.
Vitinn notar:
Villan kemur upp þegar greiðsla er endurtekin eftir tímamörk. Tillaga að lagfæringu og prófun fylgir.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Verkbókhald
Tímaskráning í verkbeiðnakerfi Vitinn tekur saman tímaskráningar á verkefni og viðskiptavini úr verkbókhaldskerfinu, til dæmis Tempo í Jira, og hjálpar starfsfólki að skrifa tímana sína á mannamáli í stað þess að vinna eftir flóknum verkferlum.
Skráðu tvo tíma í dag á samningsgerð fyrir Dæmi ehf.
Vitinn notar: Jira, Tempo
Skráð: 2 klst. í dag á verkbeiðnina „Samningsgerð“ hjá Dæmi ehf.
Þú átt eftir að skrá 3,5 klst. í þessari viku.
Tempo · verkbeiðni DAEMI-142
Hvað þarf til Vitinn + sérsmíðiVitinn, tengingar og aðstoðarmaður eða erindreki smíðaður sérstaklega fyrir verkið.
Jira Mál, verkefni og Service Desk Tempo Tímaskráning á verkbeiðnir í Jira Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
10,1 m.kr. á ári
842 þús. kr. á mánuði
Bein áhrif á afkomu
Sérfræðingar 10 Dæmi: 10 sérfræðingar, 1 klst. á viku hver, 22.000 kr.
Módelkostnaður: 437 þús. kr. á ári
Fyrst: Skráning tekur mínútursést á: Tími í skráningu Síðan: Skráð jafnóðum í stað í lok vikusést á: tíðni skráningar Til lengri tíma: Tímar gleymast ekki, og framúrkeyrsla og verkefnaskortur sjást straxsést á: óreikningsfærðir tímar Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Verkbókhald
Tímaskráning út frá git Fyrir hugbúnaðarteymi: Vitinn fer yfir git-virkni dagsins, svo sem commit, pull requests og tengdar verkbeiðnir, tekur saman hvað hver og einn vann í og leggur til tímaskráningu. Notandinn yfirfer tillöguna og Vitinn skráir hana í verkbókhaldskerfið, til dæmis Tempo.
Hvað vann ég við í dag? Komdu með tillögu að tímaskráningu.
Vitinn notar: GitHub, Jira, Tempo
Tillaga: 4 klst. á DAEMI-142 (þrjú commit, eitt pull request) og 2 klst. á DAEMI-150 (yfirferð).
Á ég að skrá þetta í Tempo?
Hvað þarf til Vitinn + tengingVitinn og tilbúin tenging við kerfi: þarf ekki að smíða, við setjum hana upp í ykkar umhverfi.
GitHub Kóðasöfn, pull requests og virkni Jira Mál, verkefni og Service Desk Tempo Tímaskráning á verkbeiðnir í Jira Allar tengingar Rekstur og birgðir
Aðstoðarmaður fyrir lagerstöðu Aðstoðarmaður tengdur vörukerfinu sem svarar spurningum um lagerstöðu á mannamáli: hvort vara sé til, hve mörg stykki eru til og hver er vörustjóri hennar.
Er þessi vara til á lager, hve mörg stykki og hver er vörustjórinn?
Vitinn notar: Business Central
Já, 46 stykki á aðallager og 12 í versluninni á Akureyri. Vörustjóri er Sigríður í innkaupum.
Hvað þarf til Vitinn + sérsmíðiVitinn, tengingar og aðstoðarmaður eða erindreki smíðaður sérstaklega fyrir verkið.
Business Central Fjárhagur, sala, innkaup og birgðir Allar tengingar Hugbúnaðarteymi
Aðstoðarmaður í hugbúnaðargerð Claude, Codex eða Copilot í ritlinum. Hver og einn verður fljótari á einföldum verkum, og með sameiginlegu verklagi fer teymið allt að njóta þess.
Útskýrðu þessa villu og leggðu til lagfæringu.
Vitinn notar:
Villan kemur af því að listinn getur verið tómur áður en hann er flokkaður. Lagfæring: athuga lengdina fyrst. Prófun fylgir.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
138 klst. á ári
12 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Forritarar 3 Dæmi: 3 forritarar, 1 klst. á viku. Getur verið núll án sameiginlegs verklags
Áætlaður módelkostnaður: 173 þús. kr. á ári
Fyrst: Hver og einn fljótari á einföldum verkumsést á: Tími á verk Síðan: Teymið fer að vinna eftir sama verklagisést á: frávik í verklagi Til lengri tíma: Fyrirsjáanlegri og augljóslega hraðari afhending á kóðasést á: áreiðanleiki áætlana Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Aðrir hafa mælt 55% hraðar - eða 19% hægar · Tvær rannsóknir
Í stýrðri tilraun kláruðu forritarar með Copilot einfalt verk frá grunni 55,8 prósent hraðar. Tveimur árum síðar mældi METR reynda forritara á eigin kerfum: þeir voru 19 prósent hægari með gervigreind, þótt þeir héldu sig hraðari. Aðstoðarmaðurinn einn tryggir ekkert. Verklagið ræður.
TechCrunch (METR)
Hugbúnaðarteymi
Prófanir samhliða kóða Prófanir verða til um leið og kóðinn, svo færri villur fara með kóða í rekstur og útgáfum fjölgar.
Skrifaðu prófanir fyrir þetta fall, líka jaðartilvik.
Vitinn notar:
Sjö prófanir: venjuleg tilvik, tómt inntak, mjög há gildi og röng dagsetning. Ein þeirra fellur og bendir á villu.
Hvað þarf til VitinnVirkar í Vitanum, án tengingar við kerfi.
Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
2,0 m.kr. á ári
167 þús. kr. á mánuði
Bein áhrif á afkomu
Forritarar 3 Dæmi: 3 forritarar, 1,7 færri villur á ári á hvern, 400.000 kr. hver villa (greining, lagfæring, truflun)
Áætlaður módelkostnaður: 690 þús. kr. á ári
Fyrst: Prófanir verða til um leið og kóðinnsést á: Prófanir Síðan: Færri villur fara með kóða í rekstursést á: villur í rekstri Til lengri tíma: Útgáfum fjölgar og áhætta minnkarsést á: tíðni útgáfa Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Aðrir hafa mælt -7,2% í stöðugleika · DORA
Í DORA-skýrslu Google 2024 fylgdi hverri 25 prósenta aukningu í notkun gervigreindar 1,5 prósenta samdráttur í afhendingarhraða og 7,2 prósenta samdráttur í stöðugleika, þótt skjölun, kóðagæði og yfirferð bötnuðu. Einstaklingarnir verða afkastameiri, en teymið ekki sjálfkrafa. Verklagið þarf að fylgja með.
Google Cloud · DORA (PDF)
Hugbúnaðarteymi
Erindrekar í viðhaldi Erindrekar grípa viðhaldsverkefni, vinna í einangruðu umhverfi og skila tillögu með prófunum. Sérfræðingur les kóðann og ákveður hvað fer í rekstur.
Uppfærðu söfnin sem eru með öryggisveikleika.
Vitinn notar: GitHub, Jira
Þrjú söfn uppfærð. Allar prófanir standast. Pull request bíður yfirferðar.
Hvað þarf til Vitinn + sérsmíðiVitinn, tengingar og aðstoðarmaður eða erindreki smíðaður sérstaklega fyrir verkið.
GitHub Kóðasöfn, pull requests og virkni Jira Mál, verkefni og Service Desk Allar tengingar Virðið Áætlaður ávinningur
383 klst. á ári
32 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Forritarar 3 Dæmi: 3 forritarar, 25% í viðhaldi, erindrekar taka 30% af því, 12.000 kr.
Áætlaður módelkostnaður: 1,0 m.kr. á ári
Fyrst: Villur lagaðar hraðarsést á: Tími á villu Síðan: Teymið getur einbeitt sér að nýjum eiginleikumsést á: hlutfall nýþróunar Til lengri tíma: Minni tækniskuld, útgáfur verða tíðari og flöskuhálsar flytjast, t.d. í yfirferð á kóðasést á: tækniskuld Tölurnar sýna ávinning. Kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá.
Aðrir hafa mælt 1.300 á viku · Stripe
Erindrekar Stripe skila yfir 1.300 samþykktum breytingum á viku án mannlegs kóða. Hver einasta fer í gegnum yfirferð hjá sérfræðingi. Það virkaði af því að prófanir, einangruð umhverfi og aðgangur að innri verkfærum voru til fyrir.
Stripe · InfoQ