Virði
Skilar gervigreindin einhverju? Svona sést það.
Virðið birtist annaðhvort í afkomunni eða í svigrúmi fólks til að sinna öðru. Hér eru dæmin eftir þrepum, og það sem aðrir hafa mælt, gott og slæmt.
Hreyfum nálina
Svona birtist virðið
Sama verkefni skilar ólíku virði eftir því hvenær þú mælir. Fyrst sparast tími, svo batna gæðin, og loks sést það í rekstrinum. Flest verkefni eru dæmd á fyrsta mælikvarðanum - virðið liggur í þeim síðasta.
Bein áhrif á afkomu
Kemur fram í bókhaldinu. Tekjur sem tapast ekki og kostnaður sem fellur ekki til.
Svigrúm til annarra verka
Tími sem fólk fær í annað. Þegar svigrúm gefst aukast ekki bara afköstin - verkefnin sem hafa setið á hakanum klárast loksins. Þegar margt smátt hleðst upp verða til stíflur annars staðar, og oftast lenda þær á þeim sem ættu að vera að vinna í öðrum virðisskapandi verkefnum.
Svigrúm
Tími losnar
Verkefnalistinn styttist
Verkefni sem hafa beðið klárast
Stíflur losna
Það sem hlóðst upp hættir að tefja annað
Betri þjónusta
Viðskiptavinir fá svör og eftirfylgni
Hollusta viðskiptavina
Viðskiptavinir fara síður til samkeppnisaðila og biðja um meira
Það getur kostað 5X til 25X meira að afla nýs viðskiptavinar en að halda þeim sem fyrir er. Rannsóknin er komin til ára sinna, en lögmálið gildir enn í dag. Þess vegna er hollusta viðskiptavina oft verðmætasta niðurstaðan - en líka sú sem erfiðast er að tengja beint við eitt verkefni. Heimild: Harvard Business Review, 2014
18 dæmi
Dæmin byrja varfærin, í næstlægsta gildi. Færðu sleðann á spjaldinu að ykkar stærð.
- VerkbókhaldÞrep 04Innleiðing: Miðlungs
Tímaskráning í verkbeiðnakerfi
Hvað þetta leysir
- FyrstSkráning tekur mínútur
- SíðanSkráð jafnóðum í stað í lok viku
- Til lengri tímaTímar gleymast ekki, og framúrkeyrsla og verkefnaskortur sjást strax
Mælt: Tími í skráningu → tíðni skráningar → óreikningsfærðir tímar
Opna dæmið →Arðsemi
10,1 m.kr.á ári
842 þús. kr. á mánuði
Bein áhrif á afkomu
025 m.kr. Módelkostnaður: 190 kr. á dag á mann × 10 → 437 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 10 sérfræðingar, 1 klst. á viku hver, 22.000 kr.
Svona er reiknað
Gleymdir tímar á viku × starfsmenn × selt tímagjald × 46 (vinnuvikur)
- Sala og markaðsmálÞrep 03Innleiðing: Mikil
Svör við fyrirspurnum fyrir kaup
Hvað þetta leysir
- FyrstSvar á mínútum, líka utan opnunartíma
- SíðanFærri hætta við áður en þeir kaupa
- Til lengri tímaFleiri fyrirspurnir verða að sölu
Mælt: Svartími → hlutfall sem kaupir → sala
Opna dæmið →Arðsemi
3,6 m.kr.á ári
300 þús. kr. á mánuði
Bein áhrif á afkomu
025 m.kr. Áætlaður módelkostnaður: 25 kr. á fyrirspurn × 1.200 á ári → 30 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 100 fyrirspurnir á mánuði, 2 prósentustigum fleiri kaupa, 150.000 kr. framlegð á sölu
Svona er reiknað
Fyrirspurnir á mán. × fleiri sem kaupa × framlegð á sölu × 12
- FjármálÞrep 04Innleiðing: Mikil
Reikningsfært í samræmi við samninga
Hvað þetta leysir
- FyrstReikningar bornir saman við samninga áður en þeir fara út
- SíðanGleymdir liðir og úrelt verð finnast strax
- Til lengri tímaTekjur leka ekki og verðhækkanir skila sér
Mælt: Frávik á reikningum → leiðréttingar → tekjur sem nást inn
Opna dæmið →Arðsemi
2,7 m.kr.á ári
225 þús. kr. á mánuði
Bein áhrif á afkomu
025 m.kr. Áætlaður módelkostnaður: 20 kr. á reikning × 900 á ári → 18 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 75 reikningar á mánuði, 2% með vanreikningsfærðum lið, 150.000 kr. að meðaltali
Svona er reiknað
Reikningar á mán. × hlutfall með vanreikningsfærðum lið × meðalupphæð × 12
- HugbúnaðarteymiÞrep 03Innleiðing: Lítil
Prófanir samhliða kóða
Hvað þetta leysir
- FyrstPrófanir verða til um leið og kóðinn
- SíðanFærri villur fara með kóða í rekstur
- Til lengri tímaÚtgáfum fjölgar og áhætta minnkar
Mælt: Prófanir → villur í rekstri → tíðni útgáfa
Opna dæmið →Arðsemi
2,0 m.kr.á ári
167 þús. kr. á mánuði
Bein áhrif á afkomu
025 m.kr. Áætlaður módelkostnaður: 1.000 kr. á dag á mann × 3 → 690 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 3 forritarar, 1,7 færri villur á ári á hvern, 400.000 kr. hver villa (greining, lagfæring, truflun)
Svona er reiknað
Forritarar × villum sem fækkar á hvern á ári × kostnaður á villu í rekstri
- HugbúnaðarteymiÞrep 04Innleiðing: Mikil
Erindrekar í viðhaldi
Hvað þetta leysir
- FyrstVillur lagaðar hraðar
- SíðanTeymið getur einbeitt sér að nýjum eiginleikum
- Til lengri tímaMinni tækniskuld, útgáfur verða tíðari og flöskuhálsar flytjast, t.d. í yfirferð á kóða
Mælt: Tími á villu → hlutfall nýþróunar → tækniskuld
Opna dæmið →Arðsemi
383 klst.á ári
32 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,2 stöðugildum
Metið á 4,6 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 1.500 kr. á dag á mann × 3 → 1,0 m.kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 3 forritarar, 25% í viðhaldi, erindrekar taka 30% af því, 12.000 kr.
Svona er reiknað
Forritarar × 1.700 klst. × hlutfall viðhalds × hlutfall sem erindrekar taka × tímakostnaður
- FjármálÞrep 03Innleiðing: Miðlungs
Spurt beint í fjárhagsgögnin
Hvað þetta leysir
- FyrstSamantekt sem tók klukkustundir tekur mínútur
- SíðanStaðan skoðuð vikulega og hægt að hugsa út fyrir boxið
- Til lengri tímaFrávik grípast fyrr
Mælt: Tími í samantekt → tíðni yfirferðar → frávik frá áætlun
Opna dæmið →Arðsemi
384 klst.á ári
32 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,2 stöðugildum
Metið á 3,9 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 190 kr. á dag á mann × 2 → 87 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 2 starfsmenn, 16 klst. á mánuði hver. Framúrkeyrsla sem stöðvast er ekki reiknuð
Svona er reiknað
Klst. í samantekt á mán. × tímakostnaður × 12
- ÞjónustuverÞrep 04Innleiðing: Mikil
Spjallmenni sem svarar fyrirspurnum
Hvað þetta leysir
- FyrstEinföldum fyrirspurnum fækkar
- SíðanStarfsfólkið fær tíma í flóknari mál
- Til lengri tímaBetri þjónusta og hollusta viðskiptavina eykst
Mælt: Leyst án manneskju → úrlausn í fyrstu snertingu → brottfall
Opna dæmið →Arðsemi
360 klst.á ári
30 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,2 stöðugildum
Metið á 3,6 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Verður að beinum áhrifum á afkomu ef nýráðning sparast.
Áætlaður módelkostnaður: 25 kr. á samtal × 9.000 á ári → 225 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 750 mál á mánuði, 40% leyst, 6 mín. hvert
Svona er reiknað
Mál á mán. × hlutfall leyst × mín. á mál ÷ 60 × tímakostnaður × 12
- Sala og markaðsmálÞrep 03Innleiðing: Miðlungs
Undirbúningur fyrir viðskiptavinafundi
Hvað þetta leysir
- FyrstSamantekt um viðskiptavininn tilbúin fyrir fundinn
- SíðanViðskiptastjórar ná að sinna fleiri viðskiptavinum
- Til lengri tímaViðskiptavinir biðja um meira og eru lengur
Mælt: Tími í undirbúning → fundir á mánuði → vöxtur og brottfall
Opna dæmið →Arðsemi
276 klst.á ári
23 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,2 stöðugildum
Metið á 3,3 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Verður að beinum áhrifum á afkomu þegar það skilar sér í auknum viðskiptum.
Áætlaður módelkostnaður: 190 kr. á dag á mann × 2 → 87 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 2 viðskiptastjórar, 3 klst. á viku hver, 12.000 kr. Aukin viðskipti eru ekki reiknuð
Svona er reiknað
Viðskiptastjórar × klst. sparaðar á viku × 46 (vinnuvikur) × tímakostnaður
- FjármálÞrep 04Innleiðing: Miðlungs
Flokkun og afstemming reikninga
Hvað þetta leysir
- FyrstFærri handfærslur
- SíðanTími sem fer í uppgjör á mánaðarlokum styttist
- Til lengri tímaTeymið vinnur í öðrum verkefnum frekar en innslætti, og fjármálateymið helst nett með lítilli yfirbyggingu
Mælt: Handfærslur → dagar í uppgjör → hlutfall greiningarvinnu
Opna dæmið →Arðsemi
240 klst.á ári
20 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum
Metið á 2,4 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 10 kr. á reikning × 3.600 á ári → 36 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 300 reikningar á mánuði, 4 mín. sparaðar á hvern
Svona er reiknað
Reikningar á mán. × mín. sparaðar ÷ 60 × tímakostnaður × 12
- Lögfræði og regluvarslaÞrep 03Innleiðing: Miðlungs
Yfirlestur samninga
Hvað þetta leysir
- FyrstFrávik frá stöðluðum skilmálum merkt sjálfkrafa
- SíðanLögfræðingurinn les það sem skiptir máli
- Til lengri tímaSamningar klárast fyrr
Mælt: Tími á samning → frávik fundin → atvik eftir undirskrift
Opna dæmið →Arðsemi
113 klst.á ári
9 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum
Metið á 2,0 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 300 kr. á samning × 75 á ári → 23 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 75 samningar, 1,5 klst. sparaðar á hvern, 18.000 kr. Áhættan sem minnkar er ekki reiknuð
Svona er reiknað
Samningar á ári × klst. sparaðar × tímakostnaður
- ÞjónustuverÞrep 03Innleiðing: Miðlungs
Samantekt á sögu máls
Hvað þetta leysir
- FyrstFulltrúinn sér sögu málsins á sekúndum
- SíðanViðskiptavinurinn þarf ekki að endurtaka sig
- Til lengri tímaFærri kvartanir og meiri hollusta viðskiptavina
Mælt: Tími á mál → endurteknar fyrirspurnir → brottfall
Opna dæmið →Arðsemi
180 klst.á ári
15 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum
Metið á 1,8 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 10 kr. á mál × 3.600 á ári → 36 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 300 mál á mánuði, 3 mín. sparaðar á hvert
Svona er reiknað
Mál á mán. × mín. sparaðar ÷ 60 × tímakostnaður × 12
- UpplýsingatækniÞrep 02Innleiðing: Lítil
Skjölun eldri kerfa
Hvað þetta leysir
- FyrstFyrsta lýsingin á gömlu kerfi verður til
- SíðanNýtt fólk þarf ekki að spyrja þann eina sem veit
- Til lengri tímaMinni lykilmannaáhætta
Mælt: Skjalfest kerfi → fyrirspurnir á lykilfólk → tími að afköstum
Opna dæmið →Arðsemi
138 klst.á ári
12 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum
Metið á 1,7 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 1.000 kr. á dag á mann × 1 → 230 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 3 klst. á viku, 12.000 kr. Kostnaðurinn ef hann fer er ekki reiknaður
Svona er reiknað
Klst. lykilmanns í svör á viku × 46 (vinnuvikur) × tímakostnaður
- HugbúnaðarteymiÞrep 01Innleiðing: Lítil
Aðstoðarmaður í hugbúnaðargerð
Hvað þetta leysir
- FyrstHver og einn fljótari á einföldum verkum
- SíðanTeymið fer að vinna eftir sama verklagi
- Til lengri tímaFyrirsjáanlegri og augljóslega hraðari afhending á kóða
Mælt: Tími á verk → frávik í verklagi → áreiðanleiki áætlana
Opna dæmið →Arðsemi
Allt að138 klst.á ári
12 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum
Metið á 1,7 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 250 kr. á dag á mann × 3 → 173 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 3 forritarar, 1 klst. á viku. Getur verið núll án sameiginlegs verklags
Svona er reiknað
Forritarar × klst. sparaðar á viku × 46 (vinnuvikur) × tímakostnaður - leyfiskostnaður
- UpplýsingatækniÞrep 04Innleiðing: Miðlungs
Innra þjónustuborð
Hvað þetta leysir
- FyrstAlgengar beiðnir leysast sjálfvirkt
- SíðanTæknifólk fær tíma í flóknari mál
- Til lengri tímaFærri truflanir í rekstri
Mælt: Sjálfvirk úrlausn → biðtími → atvik
Opna dæmið →Arðsemi
158 klst.á ári
13 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum
Metið á 1,6 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Verður að beinum áhrifum á afkomu ef nýráðning sparast.
Áætlaður módelkostnaður: 25 kr. á beiðni × 1.800 á ári → 45 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 150 beiðnir á mánuði, 35% leyst, 15 mín. hver
Svona er reiknað
Beiðnir á mán. × hlutfall leyst × mín. ÷ 60 × tímakostnaður × 12
- MannauðurÞrep 03Innleiðing: Lítil
Móttaka nýliða
Hvað þetta leysir
- FyrstNýliðinn fær svör strax, án þess að trufla samstarfsfólk
- SíðanAfköst koma fyrr
- Til lengri tímaBetri fyrsta upplifun og minni líkur á að hann leiti annað
Mælt: Tími að fullum afköstum → upplifun af móttöku → brottfall fyrsta árið
Aðeins 12% starfsfólks telja vinnustaðinn sinn standa sig vel í móttöku nýliða. Gallup
Í könnun sögðust rúmlega helmingur nýliða ófullnægjandi þjálfaðir eftir móttöku - og fjórir af hverjum fimm þeirra ætluðu að leita annað fljótlega. Paychex, 2022
Opna dæmið →Arðsemi
140 klst.á ári
12 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum
Metið á 1,4 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Verður að beinum áhrifum á afkomu þegar brotthvarf og ný ráðning sparast.
Áætlaður módelkostnaður: 190 kr. á dag á mann × 4 í 65 daga → 49 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 4 nýliðar, 2 vikum fyrr, 50% afkastabil, 350.000 kr. á viku. Brotthvarf sem forðast er ekki reiknað
Svona er reiknað
Nýliðar á ári × vikur fyrr í fullum afköstum × afkastabil × vikukostnaður
- Lögfræði og regluvarslaÞrep 03Innleiðing: Lítil
Fyrirspurnir í innri reglur
Hvað þetta leysir
- FyrstSvör á mínútum í stað þess að leita í og skilja stórar handbækur
- SíðanFærri fyrirspurnir til regluvörslu
- Til lengri tímaBetri fylgni og skilningur á reglum í gildi
Mælt: Svartími → fyrirspurnir → frávik í úttekt
Opna dæmið →Arðsemi
120 klst.á ári
10 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum
Metið á 1,2 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 25 kr. á fyrirspurn × 360 á ári → 9 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 30 fyrirspurnir á mánuði, 20 mín. hver
Svona er reiknað
Fyrirspurnir á mán. × mín. ÷ 60 × tímakostnaður × 12
- MannauðurÞrep 03Innleiðing: Lítil
Svör úr starfsmannahandbók
Hvað þetta leysir
- FyrstFærri endurteknar spurningar til mannauðs
- SíðanAllir fá sama svar á sekúndum
- Til lengri tímaMannauður sinnir þróun fólks frekar en svörum
Mælt: Fyrirspurnir → svartími → hlutfall þróunarvinnu
Opna dæmið →Arðsemi
60 klst.á ári
5 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,0 stöðugildum
Metið á 0,6 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 15 kr. á fyrirspurn × 360 á ári → 5 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 30 fyrirspurnir á mánuði, 10 mín. hver
Svona er reiknað
Fyrirspurnir á mán. × mín. ÷ 60 × tímakostnaður × 12
- Fyrir allt starfsfólkÞrep 02Innleiðing: Lítil
Fundargerðir og eftirfylgni
Hvað þetta leysir
- FyrstFundargerðin er tilbúin strax
- SíðanVerkefni úr fundum gleymast ekki
- Til lengri tímaÁkvarðanir komast hraðar til framkvæmda
Mælt: Tími í frágang → opin verkefni → tími frá ákvörðun í framkvæmd
Opna dæmið →Arðsemi
60 klst.á ári
5 klst. á mánuði
Svigrúm til annarra verka
Aukin afköst sem jafngilda 0,0 stöðugildum
Metið á 0,6 m.kr. ef tíminn er nýttur
01.500 klst. Áætlaður módelkostnaður: 50 kr. á fund × 120 á ári → 6 þús. kr. á ári
Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.
Dæmi: 10 fundir á mánuði, 30 mín. hver
Svona er reiknað
Fundir á mán. × mín. í frágang ÷ 60 × tímakostnaður × 12
Dæmigerð þróun virðis með reiknidæmum - ekki mældar niðurstöður úr tilteknum verkefnum. Forsendur: innri tímakostnaður 10.000 kr. á klst. (um 18 m.kr. árskostnaður á stöðugildi), sérfræðingar 12.000-18.000 kr., selt tímagjald 22.000 kr., 46 vinnuvikur á ári. Bein áhrif á afkomu koma fram í bókhaldinu - tekjur sem tapast ekki eða kostnaður sem fellur ekki til. Svigrúm til annarra verka er tími sem fólk fær í annað - hann verður að krónum aðeins ef hann er nýttur. Módelkostnaður er notkun gervigreindarmódelanna og vinnslan. Hann var mældur 190 kr. á dag á mann í tímaskráningu; annars er hann áætlaður út frá umfangi, og þyngri vinnsla eins og erindrekar í hugbúnaðargerð kostar meira. Kostnaður við umhverfið sjálft, innleiðingu og rekstur er ekki talinn með og bætist við.
Fyrstu 12 mánuðir:
Á ári í fullri virkni:
Þínar forsendurÞað sem aðrir hafa mælt
Opinberar niðurstöður, góðar og slæmar. Þær sýna hvar virðið liggur - og hvar það lætur á sér standa.
Fyrir fyrirtæki og stofnanir
95% án mælanlegs ávinnings
Án stefnu · MIT
Í rannsókn MIT frá 2025 skiluðu um 95 prósent tilraunaverkefna með gervigreind engum mælanlegum áhrifum á afkomu. Munurinn á hinum 5 prósentunum var ekki tæknin, heldur hvort tólin lærðu af notkun og féllu að ferlunum. Kaup og samstarf við sérhæfða aðila tókust um tvöfalt oftar en eigin smíði.
Heimildir: MIT NANDA (PDF) · Fortune
3% af vinnutímanum
Þrep 01 · Danmörk
Rannsókn á um 25.000 starfsmönnum á 7.000 dönskum vinnustöðum: notendur spjallmenna sögðust spara að meðaltali 2,8 prósent vinnutímans. Engin mælanleg áhrif fundust á laun eða vinnustundir. Almenn notkun skilar sér, en hún breytir ekki rekstrinum ein og sér.
26 mínútur á dag
Þrep 01 · Breska stjórnsýslan
Tuttugu þúsund ríkisstarfsmenn fengu Copilot í þrjá mánuði og sögðust spara 26 mínútur á dag að meðaltali - nærri tvær vikur á ári. Mælingin hjá breska skattinum var hógværari, tvö til þrjú prósent vinnuvikunnar, og 17 prósent sögðust ekkert spara. Leyfin skila, en hóflega. Stóra stökkið kemur þegar tólið tengist gögnum og ferlum.
Klukkustund á dag - fyrir suma
Þrep 01 · Ástralska ríkið
Yfir 7.600 starfsmenn ástralska ríkisins fengu Copilot í hálft ár árið 2024. Notendur töldu sig spara um klukkustund á dag í samantektum, drögum og leit, og 86 prósent vildu halda áfram. En aðeins um þriðjungur notaði tólið daglega, og allt að 7 prósent sögðu það lengja verkin því yfirferð á svörunum át upp sparnaðinn.
Heimildir: ACS Information Age · DTA
25% hraðar - eða 19 stigum verri
Þrep 01 · BCG og Harvard
758 ráðgjafar BCG fengu GPT-4. Í verkefnum sem tæknin réð við kláruðu þeir 12 prósent fleiri verkefni, 25 prósent hraðar og með yfir 30 prósent betri gæðum. Í verkefni utan getu hennar voru þeir 19 prósentustigum ólíklegri til að komast að réttri niðurstöðu. Að vita hvar mörkin liggja er hluti af leikreglunum.
Heimild: Harvard Business School
812 kanadadalir
Þrep 01 · Air Canada
Spjallmenni Air Canada sagði farþega að hann gæti sótt um sorgarafslátt eftir á, sem var rangt. Úrskurðaraðili í Bresku Kólumbíu dæmdi flugfélagið ábyrgt árið 2024: fyrirtækið ber ábyrgð á því sem spjallmennið segir. Upphæðin var lítil en lærdómurinn stór. Leikreglur og prófanir koma á undan því að gervigreind tali við viðskiptavini.
15% fleiri mál á klukkustund
Þrep 03 · Þjónustuver
Yfir 5.000 þjónustufulltrúar fengu aðstoðarmann byggðan á fyrri samtölum fyrirtækisins. Þeir leystu 15 prósent fleiri mál á klukkustund að meðaltali, og óreyndir starfsmenn um 30 prósent fleiri. Þeir reyndustu græddu lítið. Þekking þeirra bestu varð aðgengileg öllum.
98% ráðgjafateyma
Þrep 03 · Morgan Stanley
Morgan Stanley tengdi aðstoðarmann við um 100.000 innri skýrslur og skjöl fyrir fjármálaráðgjafa sína, og 98 prósent ráðgjafateyma hafa tekið hann upp. Svörin byggja á gögnum fyrirtækisins sjálfs, ekki almennum upplýsingum af netinu.
Heimildir: Morgan Stanley · CNBC
Úr 11 mínútum í tvær
Þrep 04 · Klarna
Erindreki tók við tveimur þriðju af þjónustuspjalli Klarna fyrsta mánuðinn og úrlausnartími fór úr 11 mínútum í undir tvær. Síðar réð fyrirtækið aftur fólk í flóknari mál. Virðið var raunverulegt - en það þurfti manneskju þar sem dómgreind skiptir máli.
Heimild: HubSpot
Fyrir hugbúnaðarteymi
55% hraðar - eða 19% hægar
Þrep 01 · Tvær rannsóknir
Í stýrðri tilraun kláruðu forritarar með Copilot einfalt verk frá grunni 55,8 prósent hraðar. Tveimur árum síðar mældi METR reynda forritara á eigin kerfum: þeir voru 19 prósent hægari með gervigreind, þótt þeir héldu sig hraðari. Aðstoðarmaðurinn einn tryggir ekkert. Verklagið ræður.
Heimild: TechCrunch (METR)
-7,2% í stöðugleika
Þrep 02 · DORA
Í DORA-skýrslu Google 2024 fylgdi hverri 25 prósenta aukningu í notkun gervigreindar 1,5 prósenta samdráttur í afhendingarhraða og 7,2 prósenta samdráttur í stöðugleika, þótt skjölun, kóðagæði og yfirferð bötnuðu. Einstaklingarnir verða afkastameiri, en teymið ekki sjálfkrafa. Verklagið þarf að fylgja með.
Heimildir: Google Cloud · DORA (PDF)
24% fleiri breytingar
Þrep 02-03 · Microsoft
Tugir þúsunda forritara hjá Microsoft tóku upp Claude Code og Copilot CLI snemma árs 2026. Þeir sem tóku tólin upp skiluðu um 24 prósent fleiri samþykktum breytingum og munurinn hélst í fjóra mánuði. Höfundarnir taka sjálfir fram að samþykkt breyting er ekki það sama og virði.
Heimild: Murphy-Hill o.fl., arXiv 2607.01418
75% nýs kóða
Þrep 03 · Google
Í apríl 2026 sagði Google að 75 prósent alls nýs kóða væru skrifuð af gervigreind og samþykkt af verkfræðingum, upp úr rúmum fjórðungi haustið 2024. Tölurnar eru Google sjálfs. Lykilorðið er samþykkt: hver breyting fer í gegnum yfirferð.
Heimildir: Google (2026) · Google (2024)
4.500 forritaraár
Þrep 04 · Amazon
Amazon notaði gervigreind til að uppfæra Java-kerfi sín. Meðaluppfærsla fór úr um 50 forritaradögum í nokkrar klukkustundir, yfir helmingur framleiðslukerfanna var uppfærður á innan við hálfu ári og ávinningurinn metinn um 260 milljónir dala á ári. 79 prósent sjálfvirkt gerðra breytinga fóru óbreyttar í gegnum yfirferð.
Heimild: Andy Jassy (LinkedIn)
1.300 á viku
Þrep 04 · Stripe
Erindrekar Stripe skila yfir 1.300 samþykktum breytingum á viku án mannlegs kóða. Hver einasta fer í gegnum yfirferð hjá sérfræðingi. Það virkaði af því að prófanir, einangruð umhverfi og aðgangur að innri verkfærum voru til fyrir.
Tölurnar eru eins og þær voru birtar af viðkomandi. Sumar eru sjálfmetnar af þátttakendum.
Hvar liggur virðið hjá þér?
Hálftíma samtal dugar oft til að sjá hvaða þrep á við og hvar virðið er mest.
Talaðu við okkur
Hafðu beint samband við okkur sem stöndum að þessu. Við svörum sjálf.

Andri Örvar Baldvinsson
andriorvar@apro.is
Páll Jónsson
pall@apro.is
Hlöðver Þór Árnason
hlodver@apro.is
Eða skrifaðu okkur á apro@apro.is