Fara beint í efni

Virði

Skilar gervigreindin einhverju? Svona sést það.

Virðið birtist annaðhvort í afkomunni eða í svigrúmi fólks til að sinna öðru. Hér eru dæmin eftir þrepum, og það sem aðrir hafa mælt, gott og slæmt.

Hreyfum nálina

Svona birtist virðið

Sama verkefni skilar ólíku virði eftir því hvenær þú mælir. Fyrst sparast tími, svo batna gæðin, og loks sést það í rekstrinum. Flest verkefni eru dæmd á fyrsta mælikvarðanum - virðið liggur í þeim síðasta.

Bein áhrif á afkomu

Kemur fram í bókhaldinu. Tekjur sem tapast ekki og kostnaður sem fellur ekki til.

Svigrúm til annarra verka

Tími sem fólk fær í annað. Þegar svigrúm gefst aukast ekki bara afköstin - verkefnin sem hafa setið á hakanum klárast loksins. Þegar margt smátt hleðst upp verða til stíflur annars staðar, og oftast lenda þær á þeim sem ættu að vera að vinna í öðrum virðisskapandi verkefnum.

Það getur kostað 5X til 25X meira að afla nýs viðskiptavinar en að halda þeim sem fyrir er. Rannsóknin er komin til ára sinna, en lögmálið gildir enn í dag. Þess vegna er hollusta viðskiptavina oft verðmætasta niðurstaðan - en líka sú sem erfiðast er að tengja beint við eitt verkefni. Heimild: Harvard Business Review, 2014

Dæmin byrja varfærin, í næstlægsta gildi. Færðu sleðann á spjaldinu að ykkar stærð.

  • VerkbókhaldÞrep 04Innleiðing: Miðlungs

    Tímaskráning í verkbeiðnakerfi

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstSkráning tekur mínútur
    2. SíðanSkráð jafnóðum í stað í lok viku
    3. Til lengri tímaTímar gleymast ekki, og framúrkeyrsla og verkefnaskortur sjást strax

    Mælt: Tími í skráningu → tíðni skráningar → óreikningsfærðir tímar

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    10,1 m.kr.á ári

    842 þús. kr. á mánuði

    Bein áhrif á afkomu

    Módelkostnaður: 190 kr. á dag á mann × 10 → 437 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 10 sérfræðingar, 1 klst. á viku hver, 22.000 kr.

    Svona er reiknað

    Gleymdir tímar á viku × starfsmenn × selt tímagjald × 46 (vinnuvikur)

  • Sala og markaðsmálÞrep 03Innleiðing: Mikil

    Svör við fyrirspurnum fyrir kaup

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstSvar á mínútum, líka utan opnunartíma
    2. SíðanFærri hætta við áður en þeir kaupa
    3. Til lengri tímaFleiri fyrirspurnir verða að sölu

    Mælt: Svartími → hlutfall sem kaupir → sala

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    3,6 m.kr.á ári

    300 þús. kr. á mánuði

    Bein áhrif á afkomu

    Áætlaður módelkostnaður: 25 kr. á fyrirspurn × 1.200 á ári → 30 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 100 fyrirspurnir á mánuði, 2 prósentustigum fleiri kaupa, 150.000 kr. framlegð á sölu

    Svona er reiknað

    Fyrirspurnir á mán. × fleiri sem kaupa × framlegð á sölu × 12

  • FjármálÞrep 04Innleiðing: Mikil

    Reikningsfært í samræmi við samninga

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstReikningar bornir saman við samninga áður en þeir fara út
    2. SíðanGleymdir liðir og úrelt verð finnast strax
    3. Til lengri tímaTekjur leka ekki og verðhækkanir skila sér

    Mælt: Frávik á reikningum → leiðréttingar → tekjur sem nást inn

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    2,7 m.kr.á ári

    225 þús. kr. á mánuði

    Bein áhrif á afkomu

    Áætlaður módelkostnaður: 20 kr. á reikning × 900 á ári → 18 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 75 reikningar á mánuði, 2% með vanreikningsfærðum lið, 150.000 kr. að meðaltali

    Svona er reiknað

    Reikningar á mán. × hlutfall með vanreikningsfærðum lið × meðalupphæð × 12

  • HugbúnaðarteymiÞrep 03Innleiðing: Lítil

    Prófanir samhliða kóða

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstPrófanir verða til um leið og kóðinn
    2. SíðanFærri villur fara með kóða í rekstur
    3. Til lengri tímaÚtgáfum fjölgar og áhætta minnkar

    Mælt: Prófanir → villur í rekstri → tíðni útgáfa

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    2,0 m.kr.á ári

    167 þús. kr. á mánuði

    Bein áhrif á afkomu

    Áætlaður módelkostnaður: 1.000 kr. á dag á mann × 3 → 690 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 3 forritarar, 1,7 færri villur á ári á hvern, 400.000 kr. hver villa (greining, lagfæring, truflun)

    Svona er reiknað

    Forritarar × villum sem fækkar á hvern á ári × kostnaður á villu í rekstri

  • HugbúnaðarteymiÞrep 04Innleiðing: Mikil

    Erindrekar í viðhaldi

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstVillur lagaðar hraðar
    2. SíðanTeymið getur einbeitt sér að nýjum eiginleikum
    3. Til lengri tímaMinni tækniskuld, útgáfur verða tíðari og flöskuhálsar flytjast, t.d. í yfirferð á kóða

    Mælt: Tími á villu → hlutfall nýþróunar → tækniskuld

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    383 klst.á ári

    32 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,2 stöðugildum

    Metið á 4,6 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 1.500 kr. á dag á mann × 3 → 1,0 m.kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 3 forritarar, 25% í viðhaldi, erindrekar taka 30% af því, 12.000 kr.

    Svona er reiknað

    Forritarar × 1.700 klst. × hlutfall viðhalds × hlutfall sem erindrekar taka × tímakostnaður

  • FjármálÞrep 03Innleiðing: Miðlungs

    Spurt beint í fjárhagsgögnin

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstSamantekt sem tók klukkustundir tekur mínútur
    2. SíðanStaðan skoðuð vikulega og hægt að hugsa út fyrir boxið
    3. Til lengri tímaFrávik grípast fyrr

    Mælt: Tími í samantekt → tíðni yfirferðar → frávik frá áætlun

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    384 klst.á ári

    32 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,2 stöðugildum

    Metið á 3,9 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 190 kr. á dag á mann × 2 → 87 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 2 starfsmenn, 16 klst. á mánuði hver. Framúrkeyrsla sem stöðvast er ekki reiknuð

    Svona er reiknað

    Klst. í samantekt á mán. × tímakostnaður × 12

  • ÞjónustuverÞrep 04Innleiðing: Mikil

    Spjallmenni sem svarar fyrirspurnum

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstEinföldum fyrirspurnum fækkar
    2. SíðanStarfsfólkið fær tíma í flóknari mál
    3. Til lengri tímaBetri þjónusta og hollusta viðskiptavina eykst

    Mælt: Leyst án manneskju → úrlausn í fyrstu snertingu → brottfall

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    360 klst.á ári

    30 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,2 stöðugildum

    Metið á 3,6 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Verður að beinum áhrifum á afkomu ef nýráðning sparast.

    Áætlaður módelkostnaður: 25 kr. á samtal × 9.000 á ári → 225 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 750 mál á mánuði, 40% leyst, 6 mín. hvert

    Svona er reiknað

    Mál á mán. × hlutfall leyst × mín. á mál ÷ 60 × tímakostnaður × 12

  • Sala og markaðsmálÞrep 03Innleiðing: Miðlungs

    Undirbúningur fyrir viðskiptavinafundi

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstSamantekt um viðskiptavininn tilbúin fyrir fundinn
    2. SíðanViðskiptastjórar ná að sinna fleiri viðskiptavinum
    3. Til lengri tímaViðskiptavinir biðja um meira og eru lengur

    Mælt: Tími í undirbúning → fundir á mánuði → vöxtur og brottfall

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    276 klst.á ári

    23 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,2 stöðugildum

    Metið á 3,3 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Verður að beinum áhrifum á afkomu þegar það skilar sér í auknum viðskiptum.

    Áætlaður módelkostnaður: 190 kr. á dag á mann × 2 → 87 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 2 viðskiptastjórar, 3 klst. á viku hver, 12.000 kr. Aukin viðskipti eru ekki reiknuð

    Svona er reiknað

    Viðskiptastjórar × klst. sparaðar á viku × 46 (vinnuvikur) × tímakostnaður

  • FjármálÞrep 04Innleiðing: Miðlungs

    Flokkun og afstemming reikninga

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstFærri handfærslur
    2. SíðanTími sem fer í uppgjör á mánaðarlokum styttist
    3. Til lengri tímaTeymið vinnur í öðrum verkefnum frekar en innslætti, og fjármálateymið helst nett með lítilli yfirbyggingu

    Mælt: Handfærslur → dagar í uppgjör → hlutfall greiningarvinnu

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    240 klst.á ári

    20 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum

    Metið á 2,4 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 10 kr. á reikning × 3.600 á ári → 36 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 300 reikningar á mánuði, 4 mín. sparaðar á hvern

    Svona er reiknað

    Reikningar á mán. × mín. sparaðar ÷ 60 × tímakostnaður × 12

  • Lögfræði og regluvarslaÞrep 03Innleiðing: Miðlungs

    Yfirlestur samninga

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstFrávik frá stöðluðum skilmálum merkt sjálfkrafa
    2. SíðanLögfræðingurinn les það sem skiptir máli
    3. Til lengri tímaSamningar klárast fyrr

    Mælt: Tími á samning → frávik fundin → atvik eftir undirskrift

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    113 klst.á ári

    9 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum

    Metið á 2,0 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 300 kr. á samning × 75 á ári → 23 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 75 samningar, 1,5 klst. sparaðar á hvern, 18.000 kr. Áhættan sem minnkar er ekki reiknuð

    Svona er reiknað

    Samningar á ári × klst. sparaðar × tímakostnaður

  • ÞjónustuverÞrep 03Innleiðing: Miðlungs

    Samantekt á sögu máls

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstFulltrúinn sér sögu málsins á sekúndum
    2. SíðanViðskiptavinurinn þarf ekki að endurtaka sig
    3. Til lengri tímaFærri kvartanir og meiri hollusta viðskiptavina

    Mælt: Tími á mál → endurteknar fyrirspurnir → brottfall

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    180 klst.á ári

    15 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum

    Metið á 1,8 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 10 kr. á mál × 3.600 á ári → 36 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 300 mál á mánuði, 3 mín. sparaðar á hvert

    Svona er reiknað

    Mál á mán. × mín. sparaðar ÷ 60 × tímakostnaður × 12

  • UpplýsingatækniÞrep 02Innleiðing: Lítil

    Skjölun eldri kerfa

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstFyrsta lýsingin á gömlu kerfi verður til
    2. SíðanNýtt fólk þarf ekki að spyrja þann eina sem veit
    3. Til lengri tímaMinni lykilmannaáhætta

    Mælt: Skjalfest kerfi → fyrirspurnir á lykilfólk → tími að afköstum

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    138 klst.á ári

    12 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum

    Metið á 1,7 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 1.000 kr. á dag á mann × 1 → 230 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 3 klst. á viku, 12.000 kr. Kostnaðurinn ef hann fer er ekki reiknaður

    Svona er reiknað

    Klst. lykilmanns í svör á viku × 46 (vinnuvikur) × tímakostnaður

  • HugbúnaðarteymiÞrep 01Innleiðing: Lítil

    Aðstoðarmaður í hugbúnaðargerð

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstHver og einn fljótari á einföldum verkum
    2. SíðanTeymið fer að vinna eftir sama verklagi
    3. Til lengri tímaFyrirsjáanlegri og augljóslega hraðari afhending á kóða

    Mælt: Tími á verk → frávik í verklagi → áreiðanleiki áætlana

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    Allt að138 klst.á ári

    12 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum

    Metið á 1,7 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 250 kr. á dag á mann × 3 → 173 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 3 forritarar, 1 klst. á viku. Getur verið núll án sameiginlegs verklags

    Svona er reiknað

    Forritarar × klst. sparaðar á viku × 46 (vinnuvikur) × tímakostnaður - leyfiskostnaður

  • UpplýsingatækniÞrep 04Innleiðing: Miðlungs

    Innra þjónustuborð

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstAlgengar beiðnir leysast sjálfvirkt
    2. SíðanTæknifólk fær tíma í flóknari mál
    3. Til lengri tímaFærri truflanir í rekstri

    Mælt: Sjálfvirk úrlausn → biðtími → atvik

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    158 klst.á ári

    13 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum

    Metið á 1,6 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Verður að beinum áhrifum á afkomu ef nýráðning sparast.

    Áætlaður módelkostnaður: 25 kr. á beiðni × 1.800 á ári → 45 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 150 beiðnir á mánuði, 35% leyst, 15 mín. hver

    Svona er reiknað

    Beiðnir á mán. × hlutfall leyst × mín. ÷ 60 × tímakostnaður × 12

  • MannauðurÞrep 03Innleiðing: Lítil

    Móttaka nýliða

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstNýliðinn fær svör strax, án þess að trufla samstarfsfólk
    2. SíðanAfköst koma fyrr
    3. Til lengri tímaBetri fyrsta upplifun og minni líkur á að hann leiti annað

    Mælt: Tími að fullum afköstum → upplifun af móttöku → brottfall fyrsta árið

    Aðeins 12% starfsfólks telja vinnustaðinn sinn standa sig vel í móttöku nýliða. Gallup

    Í könnun sögðust rúmlega helmingur nýliða ófullnægjandi þjálfaðir eftir móttöku - og fjórir af hverjum fimm þeirra ætluðu að leita annað fljótlega. Paychex, 2022

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    140 klst.á ári

    12 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum

    Metið á 1,4 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Verður að beinum áhrifum á afkomu þegar brotthvarf og ný ráðning sparast.

    Áætlaður módelkostnaður: 190 kr. á dag á mann × 4 í 65 daga → 49 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 4 nýliðar, 2 vikum fyrr, 50% afkastabil, 350.000 kr. á viku. Brotthvarf sem forðast er ekki reiknað

    Svona er reiknað

    Nýliðar á ári × vikur fyrr í fullum afköstum × afkastabil × vikukostnaður

  • Lögfræði og regluvarslaÞrep 03Innleiðing: Lítil

    Fyrirspurnir í innri reglur

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstSvör á mínútum í stað þess að leita í og skilja stórar handbækur
    2. SíðanFærri fyrirspurnir til regluvörslu
    3. Til lengri tímaBetri fylgni og skilningur á reglum í gildi

    Mælt: Svartími → fyrirspurnir → frávik í úttekt

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    120 klst.á ári

    10 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,1 stöðugildum

    Metið á 1,2 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 25 kr. á fyrirspurn × 360 á ári → 9 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 30 fyrirspurnir á mánuði, 20 mín. hver

    Svona er reiknað

    Fyrirspurnir á mán. × mín. ÷ 60 × tímakostnaður × 12

  • MannauðurÞrep 03Innleiðing: Lítil

    Svör úr starfsmannahandbók

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstFærri endurteknar spurningar til mannauðs
    2. SíðanAllir fá sama svar á sekúndum
    3. Til lengri tímaMannauður sinnir þróun fólks frekar en svörum

    Mælt: Fyrirspurnir → svartími → hlutfall þróunarvinnu

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    60 klst.á ári

    5 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,0 stöðugildum

    Metið á 0,6 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 15 kr. á fyrirspurn × 360 á ári → 5 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 30 fyrirspurnir á mánuði, 10 mín. hver

    Svona er reiknað

    Fyrirspurnir á mán. × mín. ÷ 60 × tímakostnaður × 12

  • Fyrir allt starfsfólkÞrep 02Innleiðing: Lítil

    Fundargerðir og eftirfylgni

    Hvað þetta leysir

    1. FyrstFundargerðin er tilbúin strax
    2. SíðanVerkefni úr fundum gleymast ekki
    3. Til lengri tímaÁkvarðanir komast hraðar til framkvæmda

    Mælt: Tími í frágang → opin verkefni → tími frá ákvörðun í framkvæmd

    Opna dæmið →

    Arðsemi

    60 klst.á ári

    5 klst. á mánuði

    Svigrúm til annarra verka

    Aukin afköst sem jafngilda 0,0 stöðugildum

    Metið á 0,6 m.kr. ef tíminn er nýttur

    Áætlaður módelkostnaður: 50 kr. á fund × 120 á ári → 6 þús. kr. á ári

    Kostnaður við umhverfið, innleiðingu og rekstur bætist við.

    Dæmi: 10 fundir á mánuði, 30 mín. hver

    Svona er reiknað

    Fundir á mán. × mín. í frágang ÷ 60 × tímakostnaður × 12

Dæmigerð þróun virðis með reiknidæmum - ekki mældar niðurstöður úr tilteknum verkefnum. Forsendur: innri tímakostnaður 10.000 kr. á klst. (um 18 m.kr. árskostnaður á stöðugildi), sérfræðingar 12.000-18.000 kr., selt tímagjald 22.000 kr., 46 vinnuvikur á ári. Bein áhrif á afkomu koma fram í bókhaldinu - tekjur sem tapast ekki eða kostnaður sem fellur ekki til. Svigrúm til annarra verka er tími sem fólk fær í annað - hann verður að krónum aðeins ef hann er nýttur. Módelkostnaður er notkun gervigreindarmódelanna og vinnslan. Hann var mældur 190 kr. á dag á mann í tímaskráningu; annars er hann áætlaður út frá umfangi, og þyngri vinnsla eins og erindrekar í hugbúnaðargerð kostar meira. Kostnaður við umhverfið sjálft, innleiðingu og rekstur er ekki talinn með og bætist við.

Svona vex virðið

Hvert verkefni nær fullri virkni á þremur til níu mánuðum eftir umfangi innleiðingar, og þau hefjast með tveggja mánaða millibili - einn ferill í einu. Fyrsta árið er því lægra en fullt ár. Það er eðlilegt: innleiðing tekur tíma, og fólk þarf tíma til að átta sig á því hvernig best er að nota hana.

Fyrstu 12 mánuðir

Á ári í fullri virkni

Virði á mánuði, öll valin verkefni samanlögð
MánuðurVirði á mánuði

Valin verkefni

    Grunnurinn er innleiddur einu sinni. Hvert verkefni ofan á bætir við virði fyrir módelkostnaðinn einan. Hvað það þýðir fyrir þitt fyrirtæki reiknum við með þér.

    Útreikningurinn sýnir stærðargráðu, ekki tilboð. Ef sleði hefur verið færður á spjaldi eru það þínar forsendur sem gilda.

    Það sem aðrir hafa mælt

    Opinberar niðurstöður, góðar og slæmar. Þær sýna hvar virðið liggur - og hvar það lætur á sér standa.

    Fyrir fyrirtæki og stofnanir

    • 95% án mælanlegs ávinnings

      Án stefnu · MIT

      Í rannsókn MIT frá 2025 skiluðu um 95 prósent tilraunaverkefna með gervigreind engum mælanlegum áhrifum á afkomu. Munurinn á hinum 5 prósentunum var ekki tæknin, heldur hvort tólin lærðu af notkun og féllu að ferlunum. Kaup og samstarf við sérhæfða aðila tókust um tvöfalt oftar en eigin smíði.

      Heimildir: MIT NANDA (PDF) · Fortune

    • 3% af vinnutímanum

      Þrep 01 · Danmörk

      Rannsókn á um 25.000 starfsmönnum á 7.000 dönskum vinnustöðum: notendur spjallmenna sögðust spara að meðaltali 2,8 prósent vinnutímans. Engin mælanleg áhrif fundust á laun eða vinnustundir. Almenn notkun skilar sér, en hún breytir ekki rekstrinum ein og sér.

      Heimildir: NBER · BFI

    • 26 mínútur á dag

      Þrep 01 · Breska stjórnsýslan

      Tuttugu þúsund ríkisstarfsmenn fengu Copilot í þrjá mánuði og sögðust spara 26 mínútur á dag að meðaltali - nærri tvær vikur á ári. Mælingin hjá breska skattinum var hógværari, tvö til þrjú prósent vinnuvikunnar, og 17 prósent sögðust ekkert spara. Leyfin skila, en hóflega. Stóra stökkið kemur þegar tólið tengist gögnum og ferlum.

      Heimildir: GOV.UK · HMRC · GeekWire

    • Klukkustund á dag - fyrir suma

      Þrep 01 · Ástralska ríkið

      Yfir 7.600 starfsmenn ástralska ríkisins fengu Copilot í hálft ár árið 2024. Notendur töldu sig spara um klukkustund á dag í samantektum, drögum og leit, og 86 prósent vildu halda áfram. En aðeins um þriðjungur notaði tólið daglega, og allt að 7 prósent sögðu það lengja verkin því yfirferð á svörunum át upp sparnaðinn.

      Heimildir: ACS Information Age · DTA

    • 25% hraðar - eða 19 stigum verri

      Þrep 01 · BCG og Harvard

      758 ráðgjafar BCG fengu GPT-4. Í verkefnum sem tæknin réð við kláruðu þeir 12 prósent fleiri verkefni, 25 prósent hraðar og með yfir 30 prósent betri gæðum. Í verkefni utan getu hennar voru þeir 19 prósentustigum ólíklegri til að komast að réttri niðurstöðu. Að vita hvar mörkin liggja er hluti af leikreglunum.

      Heimild: Harvard Business School

    • 812 kanadadalir

      Þrep 01 · Air Canada

      Spjallmenni Air Canada sagði farþega að hann gæti sótt um sorgarafslátt eftir á, sem var rangt. Úrskurðaraðili í Bresku Kólumbíu dæmdi flugfélagið ábyrgt árið 2024: fyrirtækið ber ábyrgð á því sem spjallmennið segir. Upphæðin var lítil en lærdómurinn stór. Leikreglur og prófanir koma á undan því að gervigreind tali við viðskiptavini.

      Heimildir: BCCRT · CBC

    • 15% fleiri mál á klukkustund

      Þrep 03 · Þjónustuver

      Yfir 5.000 þjónustufulltrúar fengu aðstoðarmann byggðan á fyrri samtölum fyrirtækisins. Þeir leystu 15 prósent fleiri mál á klukkustund að meðaltali, og óreyndir starfsmenn um 30 prósent fleiri. Þeir reyndustu græddu lítið. Þekking þeirra bestu varð aðgengileg öllum.

      Heimildir: NBER · arXiv

    • 98% ráðgjafateyma

      Þrep 03 · Morgan Stanley

      Morgan Stanley tengdi aðstoðarmann við um 100.000 innri skýrslur og skjöl fyrir fjármálaráðgjafa sína, og 98 prósent ráðgjafateyma hafa tekið hann upp. Svörin byggja á gögnum fyrirtækisins sjálfs, ekki almennum upplýsingum af netinu.

      Heimildir: Morgan Stanley · CNBC

    • Úr 11 mínútum í tvær

      Þrep 04 · Klarna

      Erindreki tók við tveimur þriðju af þjónustuspjalli Klarna fyrsta mánuðinn og úrlausnartími fór úr 11 mínútum í undir tvær. Síðar réð fyrirtækið aftur fólk í flóknari mál. Virðið var raunverulegt - en það þurfti manneskju þar sem dómgreind skiptir máli.

      Heimild: HubSpot

    Fyrir hugbúnaðarteymi

    • 55% hraðar - eða 19% hægar

      Þrep 01 · Tvær rannsóknir

      Í stýrðri tilraun kláruðu forritarar með Copilot einfalt verk frá grunni 55,8 prósent hraðar. Tveimur árum síðar mældi METR reynda forritara á eigin kerfum: þeir voru 19 prósent hægari með gervigreind, þótt þeir héldu sig hraðari. Aðstoðarmaðurinn einn tryggir ekkert. Verklagið ræður.

      Heimild: TechCrunch (METR)

    • -7,2% í stöðugleika

      Þrep 02 · DORA

      Í DORA-skýrslu Google 2024 fylgdi hverri 25 prósenta aukningu í notkun gervigreindar 1,5 prósenta samdráttur í afhendingarhraða og 7,2 prósenta samdráttur í stöðugleika, þótt skjölun, kóðagæði og yfirferð bötnuðu. Einstaklingarnir verða afkastameiri, en teymið ekki sjálfkrafa. Verklagið þarf að fylgja með.

      Heimildir: Google Cloud · DORA (PDF)

    • 24% fleiri breytingar

      Þrep 02-03 · Microsoft

      Tugir þúsunda forritara hjá Microsoft tóku upp Claude Code og Copilot CLI snemma árs 2026. Þeir sem tóku tólin upp skiluðu um 24 prósent fleiri samþykktum breytingum og munurinn hélst í fjóra mánuði. Höfundarnir taka sjálfir fram að samþykkt breyting er ekki það sama og virði.

      Heimild: Murphy-Hill o.fl., arXiv 2607.01418

    • 75% nýs kóða

      Þrep 03 · Google

      Í apríl 2026 sagði Google að 75 prósent alls nýs kóða væru skrifuð af gervigreind og samþykkt af verkfræðingum, upp úr rúmum fjórðungi haustið 2024. Tölurnar eru Google sjálfs. Lykilorðið er samþykkt: hver breyting fer í gegnum yfirferð.

      Heimildir: Google (2026) · Google (2024)

    • 4.500 forritaraár

      Þrep 04 · Amazon

      Amazon notaði gervigreind til að uppfæra Java-kerfi sín. Meðaluppfærsla fór úr um 50 forritaradögum í nokkrar klukkustundir, yfir helmingur framleiðslukerfanna var uppfærður á innan við hálfu ári og ávinningurinn metinn um 260 milljónir dala á ári. 79 prósent sjálfvirkt gerðra breytinga fóru óbreyttar í gegnum yfirferð.

      Heimild: Andy Jassy (LinkedIn)

    • 1.300 á viku

      Þrep 04 · Stripe

      Erindrekar Stripe skila yfir 1.300 samþykktum breytingum á viku án mannlegs kóða. Hver einasta fer í gegnum yfirferð hjá sérfræðingi. Það virkaði af því að prófanir, einangruð umhverfi og aðgangur að innri verkfærum voru til fyrir.

      Heimildir: Stripe · InfoQ

    Tölurnar eru eins og þær voru birtar af viðkomandi. Sumar eru sjálfmetnar af þátttakendum.

    Hvar liggur virðið hjá þér?

    Hálftíma samtal dugar oft til að sjá hvaða þrep á við og hvar virðið er mest.

    Talaðu við okkur

    Hafðu beint samband við okkur sem stöndum að þessu. Við svörum sjálf.

    Eða skrifaðu okkur á apro@apro.is