Notkunardæmi
Vissa um mánaðarmótin.
Gervigreind í daglegum verkefnum
Vitinn nýtist best í daglegum verkefnum þar sem fólk vinnur með texta, skjöl og upplýsingar. Veldu deild eða það sem verkefnið þarf, og smelltu á dæmi til að sjá svarið, tengingarnar og virðið.
Smelltu á dæmi til að sjá meira. Tölurnar sýna ávinning í varfærnu dæmi; kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá. Hvernig er þetta reiknað?
- Texti og samskiptiFyrir allt starfsfólkVitinnDrög að tölvupóstum, tilkynningum, fundargerðum og skýrslum. Vitinn lagar málfar, styttir og breytir tóni, á íslensku eða ensku.„Gerðu drög að tilkynningu til starfsfólks um nýja orlofsskráningu.“
- SamantektirFyrir allt starfsfólkVitinnSettu inn langt skjal, samning eða fundargögn og fáðu helstu atriði, ákvarðanir og opnar spurningar á nokkrum sekúndum.„Hver eru helstu atriðin og opnu spurningarnar í þessum fundargögnum?“
- ÞýðingarFyrir allt starfsfólkVitinnMilli íslensku og ensku (og fleiri tungumála), með tilliti til samhengis og fagorða ykkar.„Þýddu þessa skilmála yfir á ensku og haltu fagorðunum okkar.“
- Hugmyndavinna og undirbúningurFyrir allt starfsfólkVitinnSpurningar fyrir viðtal, uppbygging kynningar, rök með og á móti tillögu.„Settu upp spurningar fyrir starfsviðtal við verkefnastjóra.“
- Fundargerðir og eftirfylgniFyrir allt starfsfólkVitinnFundargerðin verður til strax eftir fundinn, með ákvörðunum og verkefnum sem hver og einn ber ábyrgð á.„Gerðu fundargerð úr þessari upptöku og listaðu verkefnin.“
Áætlaður ávinningur
≈ 60 klst. á ári
- Leit í innri þekkinguFyrir allt starfsfólkVitinn + tengingVitinn leitar í handbókum, verklagsreglum og skjalasöfnum og vísar í heimildina, svo starfsfólk þarf ekki að vita hvar skjalið liggur.„Hvert er ferlið við endurgreiðslu?“
- Spurt beint í gögninFyrir allt starfsfólkVitinn + tengingSpurt á mannamáli beint í skjöl og þekkingu fyrirtækisins, í SharePoint eða öðrum þekkingarsöfnum, og svarið vísar í heimildina.„Hvaða verkefni unnum við fyrir Dæmi ehf. í fyrra og hver stýrði þeim?“
- FræðsluaðstoðarmaðurFyrir allt starfsfólkVitinn + tengingAðstoðarmaður tengdur fræðsluefni fyrirtækisins, svo sem námskeiðum, handbókum og leiðbeiningum. Starfsfólk spyr spurninga og fær svör byggð á ykkar eigin efni, með vísun í heimildina.„Erum við með leyfð gervigreindarforrit og stefnu?“
- Staða gagnvart áætlunFjármálVitinn + tengingStaðan gagnvart fjárhagsáætlun eftir deildum og verkefnum, hvenær sem er, án þess að bíða eftir mánaðaruppgjöri.„Hvernig stöndum við gagnvart fjárhagsáætlun í dag?“
- SjóðstreymiFjármálVitinn + tengingYfirsýn yfir inn- og útgreiðslur næstu vikna út frá útistandandi reikningum og skuldbindingum.„Hvernig lítur sjóðstreymið út næstu sex vikurnar?“
- Skýringar á frávikumFjármálVitinn + tengingVitinn finnur hvaða færslur skýra frávik frá áætlun og leggur til drög að skýringum í greinargerð.„Af hverju er launakostnaður 6% yfir áætlun í þriðja ársfjórðungi?“
- Spurt beint í fjárhagsgögninFjármálVitinn + tengingSpurningar um tölur úr fjárhagskerfinu á mannamáli. Samantektir sem tóku klukkustundir taka mínútur, svo hægt er að skoða stöðuna vikulega.„Hvernig þróaðist sala í flokki X síðustu sex mánuði?“
Áætlaður ávinningur
≈ 384 klst. á ári
- Flokkun og afstemming reikningaFjármálVitinn + sérsmíðiInnsendir reikningar eru flokkaðir á rétta lykla og bornir saman við pantanir, svo færri handfærslur þarf.„Hvaða reikningar frá vikunni passa ekki við pöntun?“
Áætlaður ávinningur
≈ 240 klst. á ári
- Reikningsfært í samræmi við samningaFjármálVitinn + sérsmíðiReikningar eru bornir saman við samninga áður en þeir fara út, svo gleymdir liðir og úrelt verð finnast strax.„Eru reikningar mánaðarins í samræmi við samningana?“
Áætlaður ávinningur
≈ 2,7 m.kr. á ári
- Stuðningur við þjónustuverÞjónustuverVitinn + tengingDrög að svörum til viðskiptavina byggð á fyrri málum, skilmálum og vöruupplýsingum. Starfsmaðurinn yfirfer og sendir. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).„Gerðu drög að svari við þessari fyrirspurn út frá skilmálunum okkar.“
- Samantekt á sögu málsÞjónustuverVitinn + tengingFulltrúinn sér sögu málsins á sekúndum, svo viðskiptavinurinn þarf ekki að endurtaka sig. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).„Hver er saga þessa máls?“
Áætlaður ávinningur
≈ 180 klst. á ári
- Spjallmenni sem svarar fyrirspurnumÞjónustuverVitinn + sérsmíðiSpjallmenni svarar einföldum fyrirspurnum viðskiptavina allan sólarhringinn og vísar flóknari málum til starfsfólks. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).„Hvenær kemur pöntunin mín?“
Áætlaður ávinningur
≈ 360 klst. á ári
- Greining skjala í málumÞjónustuverVitinn + tengingVitinn fer yfir skjöl sem fylgja máli, til dæmis tjónaskjöl, umsóknir eða reikninga, dregur út það sem skiptir máli og bendir á það sem vantar.„Hvað vantar í þessa umsókn?“
- Móttaka nýliðaMannauðurVitinn + tengingNýtt starfsfólk spyr spurninga um ferla, kerfi og stefnur og fær svör byggð á ykkar eigin gögnum.„Hvernig skrái ég orlof og hver samþykkir það?“
Áætlaður ávinningur
≈ 140 klst. á ári
- Svör úr starfsmannahandbókMannauðurVitinn + tengingSvör við spurningum um kjör og stefnur, svo færri endurteknar spurningar berast mannauði og allir fá sama svar.„Hvað segir starfsmannastefnan um fjarvinnu?“
Áætlaður ávinningur
≈ 60 klst. á ári
- Yfirlestur samningaLögfræði og regluvarslaVitinn + tengingFrávik frá stöðluðum skilmálum eru merkt sjálfkrafa, svo lögfræðingurinn les það sem skiptir máli.„Hvar víkur þessi samningur frá stöðluðu skilmálunum okkar?“
Áætlaður ávinningur
≈ 113 klst. á ári
- Samanburður útgáfaLögfræði og regluvarslaVitinnTvær útgáfur af samningi eða reglum bornar saman og breytingarnar útskýrðar á mannamáli.„Hver er munurinn á þessum tveimur útgáfum samningsins?“
- Fyrirspurnir í innri reglurLögfræði og regluvarslaVitinn + tengingSvör á mínútum í stað þess að leita í og skilja stórar handbækur, með vísun í reglurnar sjálfar.„Má ég taka við gjöf frá birgi?“
Áætlaður ávinningur
≈ 120 klst. á ári
- SamningagerðLögfræði og regluvarslaVitinn + tengingDrög að samningum út frá ykkar eigin sniðmátum, með upplýsingum um viðskiptavininn úr fyrirtækjaskrá. Ábyrgðaraðili yfirfer áður en skrifað er undir.„Búðu til nýjan samning fyrir Dæmi ehf. Þau eru að fara í Vitann og ætla að nota Azure.“
- Svör við fyrirspurnum fyrir kaupSala og markaðsmálVitinn + tengingViðskiptavinir fá svar á mínútum, líka utan opnunartíma, byggt á vöruupplýsingum og lagerstöðu, svo færri hætta við áður en þeir kaupa.„Passar þessi varahlutur í árgerð 2019?“
Áætlaður ávinningur
≈ 3,6 m.kr. á ári
- Undirbúningur fyrir viðskiptavinafundiSala og markaðsmálVitinn + tengingSamantekt um viðskiptavininn er tilbúin fyrir fundinn: viðskiptasaga, opin mál og síðustu samskipti.„Taktu saman viðskiptasögu Dæmis ehf. fyrir fundinn á morgun.“
Áætlaður ávinningur
≈ 276 klst. á ári
- Innra þjónustuborðUpplýsingatækniVitinn + sérsmíðiAðstoðarmaður sem leysir algengustu málin, eins og lykilorð, aðgang, prentara og uppsetningu, og léttir þannig álagi af upplýsingatæknideildinni svo hún geti einbeitt sér að flóknari verkefnum.„Hvernig tengist ég VPN-inu heiman frá?“
Áætlaður ávinningur
≈ 158 klst. á ári
- Skjölun eldri kerfaUpplýsingatækniVitinn + tengingFyrsta lýsingin á gömlu kerfi verður til úr kóðanum, svo nýtt fólk þarf ekki að spyrja þann eina sem veit.„Hvað gerir launakeyrslan og hvaðan fær hún gögnin?“
Áætlaður ávinningur
≈ 138 klst. á ári
- Verktakar í hugbúnaðarþróunUpplýsingatækniVitinnVerktakar vinna með gervigreindartólin sem þeir þekkja, eins og Claude Code, Codex eða OpenCode, en gervigreindin keyrir í gegnum ykkar umhverfi. Kóðinn og gögnin fara ekki um persónulegar áskriftir, aðgangur fylgir ykkar aðgangsstýringu og lokast þegar verkefninu lýkur.„Farðu yfir villuna í greiðsluflæðinu og leggðu til lagfæringu.“
- Tímaskráning í verkbeiðnakerfiVerkbókhaldVitinn + sérsmíðiVitinn tekur saman tímaskráningar á verkefni og viðskiptavini úr verkbókhaldskerfinu, til dæmis Tempo í Jira, og hjálpar starfsfólki að skrifa tímana sína á mannamáli í stað þess að vinna eftir flóknum verkferlum.„Skráðu tvo tíma í dag á samningsgerð fyrir Dæmi ehf.“
Áætlaður ávinningur
≈ 10,1 m.kr. á ári
- Tímaskráning út frá gitVerkbókhaldVitinn + tengingFyrir hugbúnaðarteymi: Vitinn fer yfir git-virkni dagsins, svo sem commit, pull requests og tengdar verkbeiðnir, tekur saman hvað hver og einn vann í og leggur til tímaskráningu. Notandinn yfirfer tillöguna og Vitinn skráir hana í verkbókhaldskerfið, til dæmis Tempo.„Hvað vann ég við í dag? Komdu með tillögu að tímaskráningu.“
- Aðstoðarmaður fyrir lagerstöðuRekstur og birgðirVitinn + sérsmíðiAðstoðarmaður tengdur vörukerfinu sem svarar spurningum um lagerstöðu á mannamáli: hvort vara sé til, hve mörg stykki eru til og hver er vörustjóri hennar.„Er þessi vara til á lager, hve mörg stykki og hver er vörustjórinn?“
- Aðstoðarmaður í hugbúnaðargerðHugbúnaðarteymiVitinnClaude, Codex eða Copilot í ritlinum. Hver og einn verður fljótari á einföldum verkum, og með sameiginlegu verklagi fer teymið allt að njóta þess.„Útskýrðu þessa villu og leggðu til lagfæringu.“
Áætlaður ávinningur
≈ 138 klst. á ári
- Prófanir samhliða kóðaHugbúnaðarteymiVitinnPrófanir verða til um leið og kóðinn, svo færri villur fara með kóða í rekstur og útgáfum fjölgar.„Skrifaðu prófanir fyrir þetta fall, líka jaðartilvik.“
Áætlaður ávinningur
≈ 2,0 m.kr. á ári
- Erindrekar í viðhaldiHugbúnaðarteymiVitinn + sérsmíðiErindrekar grípa viðhaldsverkefni, vinna í einangruðu umhverfi og skila tillögu með prófunum. Sérfræðingur les kóðann og ákveður hvað fer í rekstur.„Uppfærðu söfnin sem eru með öryggisveikleika.“
Áætlaður ávinningur
≈ 383 klst. á ári
Fyrstu 12 mánuðir:
Á ári í fullri virkni:
Þínar forsendurHvar á að byrja?
Það fer eftir því hvar þú stendur.