Fara beint í efni

Notkunardæmi

Vissa um mánaðarmótin.

Gervigreind í daglegum verkefnum

Vitinn nýtist best í daglegum verkefnum þar sem fólk vinnur með texta, skjöl og upplýsingar. Veldu deild eða það sem verkefnið þarf, og smelltu á dæmi til að sjá svarið, tengingarnar og virðið.

Hvað þarf til?

Smelltu á dæmi til að sjá meira. Tölurnar sýna ávinning í varfærnu dæmi; kostnaður við Vitann, innleiðingu og rekstur er ekki dreginn frá. Hvernig er þetta reiknað?

  • Texti og samskipti
    Fyrir allt starfsfólkVitinn
    Drög að tölvupóstum, tilkynningum, fundargerðum og skýrslum. Vitinn lagar málfar, styttir og breytir tóni, á íslensku eða ensku.
  • Samantektir
    Fyrir allt starfsfólkVitinn
    Settu inn langt skjal, samning eða fundargögn og fáðu helstu atriði, ákvarðanir og opnar spurningar á nokkrum sekúndum.
  • Þýðingar
    Fyrir allt starfsfólkVitinn
    Milli íslensku og ensku (og fleiri tungumála), með tilliti til samhengis og fagorða ykkar.
  • Hugmyndavinna og undirbúningur
    Fyrir allt starfsfólkVitinn
    Spurningar fyrir viðtal, uppbygging kynningar, rök með og á móti tillögu.
  • Fundargerðir og eftirfylgni
    Fyrir allt starfsfólkVitinn
    Fundargerðin verður til strax eftir fundinn, með ákvörðunum og verkefnum sem hver og einn ber ábyrgð á.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 60 klst. á ári

  • Leit í innri þekkingu
    Fyrir allt starfsfólkVitinn + tenging
    Vitinn leitar í handbókum, verklagsreglum og skjalasöfnum og vísar í heimildina, svo starfsfólk þarf ekki að vita hvar skjalið liggur.
  • Spurt beint í gögnin
    Fyrir allt starfsfólkVitinn + tenging
    Spurt á mannamáli beint í skjöl og þekkingu fyrirtækisins, í SharePoint eða öðrum þekkingarsöfnum, og svarið vísar í heimildina.
  • Fræðsluaðstoðarmaður
    Fyrir allt starfsfólkVitinn + tenging
    Aðstoðarmaður tengdur fræðsluefni fyrirtækisins, svo sem námskeiðum, handbókum og leiðbeiningum. Starfsfólk spyr spurninga og fær svör byggð á ykkar eigin efni, með vísun í heimildina.
  • Staða gagnvart áætlun
    FjármálVitinn + tenging
    Staðan gagnvart fjárhagsáætlun eftir deildum og verkefnum, hvenær sem er, án þess að bíða eftir mánaðaruppgjöri.
  • Sjóðstreymi
    FjármálVitinn + tenging
    Yfirsýn yfir inn- og útgreiðslur næstu vikna út frá útistandandi reikningum og skuldbindingum.
  • Skýringar á frávikum
    FjármálVitinn + tenging
    Vitinn finnur hvaða færslur skýra frávik frá áætlun og leggur til drög að skýringum í greinargerð.
  • Spurt beint í fjárhagsgögnin
    FjármálVitinn + tenging
    Spurningar um tölur úr fjárhagskerfinu á mannamáli. Samantektir sem tóku klukkustundir taka mínútur, svo hægt er að skoða stöðuna vikulega.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 384 klst. á ári

  • Flokkun og afstemming reikninga
    FjármálVitinn + sérsmíði
    Innsendir reikningar eru flokkaðir á rétta lykla og bornir saman við pantanir, svo færri handfærslur þarf.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 240 klst. á ári

  • Reikningsfært í samræmi við samninga
    FjármálVitinn + sérsmíði
    Reikningar eru bornir saman við samninga áður en þeir fara út, svo gleymdir liðir og úrelt verð finnast strax.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 2,7 m.kr. á ári

  • Stuðningur við þjónustuver
    ÞjónustuverVitinn + tenging
    Drög að svörum til viðskiptavina byggð á fyrri málum, skilmálum og vöruupplýsingum. Starfsmaðurinn yfirfer og sendir. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).
  • Samantekt á sögu máls
    ÞjónustuverVitinn + tenging
    Fulltrúinn sér sögu málsins á sekúndum, svo viðskiptavinurinn þarf ekki að endurtaka sig. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 180 klst. á ári

  • Spjallmenni sem svarar fyrirspurnum
    ÞjónustuverVitinn + sérsmíði
    Spjallmenni svarar einföldum fyrirspurnum viðskiptavina allan sólarhringinn og vísar flóknari málum til starfsfólks. Kennitölur og kortanúmer eru falin áður en módelið sér textann (valkvæð viðbót).

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 360 klst. á ári

  • Greining skjala í málum
    ÞjónustuverVitinn + tenging
    Vitinn fer yfir skjöl sem fylgja máli, til dæmis tjónaskjöl, umsóknir eða reikninga, dregur út það sem skiptir máli og bendir á það sem vantar.
  • Móttaka nýliða
    MannauðurVitinn + tenging
    Nýtt starfsfólk spyr spurninga um ferla, kerfi og stefnur og fær svör byggð á ykkar eigin gögnum.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 140 klst. á ári

  • Svör úr starfsmannahandbók
    MannauðurVitinn + tenging
    Svör við spurningum um kjör og stefnur, svo færri endurteknar spurningar berast mannauði og allir fá sama svar.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 60 klst. á ári

  • Yfirlestur samninga
    Lögfræði og regluvarslaVitinn + tenging
    Frávik frá stöðluðum skilmálum eru merkt sjálfkrafa, svo lögfræðingurinn les það sem skiptir máli.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 113 klst. á ári

  • Samanburður útgáfa
    Lögfræði og regluvarslaVitinn
    Tvær útgáfur af samningi eða reglum bornar saman og breytingarnar útskýrðar á mannamáli.
  • Fyrirspurnir í innri reglur
    Lögfræði og regluvarslaVitinn + tenging
    Svör á mínútum í stað þess að leita í og skilja stórar handbækur, með vísun í reglurnar sjálfar.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 120 klst. á ári

  • Samningagerð
    Lögfræði og regluvarslaVitinn + tenging
    Drög að samningum út frá ykkar eigin sniðmátum, með upplýsingum um viðskiptavininn úr fyrirtækjaskrá. Ábyrgðaraðili yfirfer áður en skrifað er undir.
  • Svör við fyrirspurnum fyrir kaup
    Sala og markaðsmálVitinn + tenging
    Viðskiptavinir fá svar á mínútum, líka utan opnunartíma, byggt á vöruupplýsingum og lagerstöðu, svo færri hætta við áður en þeir kaupa.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 3,6 m.kr. á ári

  • Undirbúningur fyrir viðskiptavinafundi
    Sala og markaðsmálVitinn + tenging
    Samantekt um viðskiptavininn er tilbúin fyrir fundinn: viðskiptasaga, opin mál og síðustu samskipti.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 276 klst. á ári

  • Innra þjónustuborð
    UpplýsingatækniVitinn + sérsmíði
    Aðstoðarmaður sem leysir algengustu málin, eins og lykilorð, aðgang, prentara og uppsetningu, og léttir þannig álagi af upplýsingatæknideildinni svo hún geti einbeitt sér að flóknari verkefnum.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 158 klst. á ári

  • Skjölun eldri kerfa
    UpplýsingatækniVitinn + tenging
    Fyrsta lýsingin á gömlu kerfi verður til úr kóðanum, svo nýtt fólk þarf ekki að spyrja þann eina sem veit.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 138 klst. á ári

  • Verktakar í hugbúnaðarþróun
    UpplýsingatækniVitinn
    Verktakar vinna með gervigreindartólin sem þeir þekkja, eins og Claude Code, Codex eða OpenCode, en gervigreindin keyrir í gegnum ykkar umhverfi. Kóðinn og gögnin fara ekki um persónulegar áskriftir, aðgangur fylgir ykkar aðgangsstýringu og lokast þegar verkefninu lýkur.
  • Tímaskráning í verkbeiðnakerfi
    VerkbókhaldVitinn + sérsmíði
    Vitinn tekur saman tímaskráningar á verkefni og viðskiptavini úr verkbókhaldskerfinu, til dæmis Tempo í Jira, og hjálpar starfsfólki að skrifa tímana sína á mannamáli í stað þess að vinna eftir flóknum verkferlum.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 10,1 m.kr. á ári

  • Tímaskráning út frá git
    VerkbókhaldVitinn + tenging
    Fyrir hugbúnaðarteymi: Vitinn fer yfir git-virkni dagsins, svo sem commit, pull requests og tengdar verkbeiðnir, tekur saman hvað hver og einn vann í og leggur til tímaskráningu. Notandinn yfirfer tillöguna og Vitinn skráir hana í verkbókhaldskerfið, til dæmis Tempo.
  • Aðstoðarmaður fyrir lagerstöðu
    Rekstur og birgðirVitinn + sérsmíði
    Aðstoðarmaður tengdur vörukerfinu sem svarar spurningum um lagerstöðu á mannamáli: hvort vara sé til, hve mörg stykki eru til og hver er vörustjóri hennar.
  • Claude, Codex eða Copilot í ritlinum. Hver og einn verður fljótari á einföldum verkum, og með sameiginlegu verklagi fer teymið allt að njóta þess.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 138 klst. á ári

  • Prófanir samhliða kóða
    HugbúnaðarteymiVitinn
    Prófanir verða til um leið og kóðinn, svo færri villur fara með kóða í rekstur og útgáfum fjölgar.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 2,0 m.kr. á ári

  • Erindrekar í viðhaldi
    HugbúnaðarteymiVitinn + sérsmíði
    Erindrekar grípa viðhaldsverkefni, vinna í einangruðu umhverfi og skila tillögu með prófunum. Sérfræðingur les kóðann og ákveður hvað fer í rekstur.

    Áætlaður ávinningur

    ≈ 383 klst. á ári

Svona vex virðið

Hvert verkefni nær fullri virkni á þremur til níu mánuðum eftir umfangi innleiðingar, og þau hefjast með tveggja mánaða millibili - einn ferill í einu. Fyrsta árið er því lægra en fullt ár. Það er eðlilegt: innleiðing tekur tíma, og fólk þarf tíma til að átta sig á því hvernig best er að nota hana.

Fyrstu 12 mánuðir

Á ári í fullri virkni

Virði á mánuði, öll valin verkefni samanlögð
MánuðurVirði á mánuði

Valin verkefni

    Grunnurinn er innleiddur einu sinni. Hvert verkefni ofan á bætir við virði fyrir módelkostnaðinn einan. Hvað það þýðir fyrir þitt fyrirtæki reiknum við með þér.

    Útreikningurinn sýnir stærðargráðu, ekki tilboð. Ef sleði hefur verið færður á spjaldi eru það þínar forsendur sem gilda.

    Hvar á að byrja?

    Það fer eftir því hvar þú stendur.