Fara beint í efni

APRÓ Vitinn

Fólkið þitt notar gervigreind. Við höldum gögnunum heima.

Fólkið þitt fær svör, samantektir og drög á íslensku, unnin upp úr kerfunum sem þú notar, og allt keyrir í þínu eigin skýjaumhverfi innan ESB.

Í notkun hjá

og fjölda annarra íslenskra fyrirtækja og stofnana

Hraði án stefnu skilar engu virði.

Skuggagervigreind

80% sérfræðinga á Íslandi nota gervigreind í starfi. Þar af nota 65% persónulegan aðgang án samþykkis vinnuveitanda. Við það glatast öll yfirsýn og virðið verður eftir í spjallsögu hvers og eins.

Heimild: Könnun Visku, nóvember 2025

Tilraunir sem staðna

Um helmingur íslenskra fyrirtækja notar gervigreind, en aðeins fjórðungur nýtir hana í tiltekin verkefni og enn færri hafa formlega stefnu. Verkefni festast á tilraunastigi í stað þess að skila rekstrarlegum ávinningi.

Heimild: Hagstofa Íslands, Upplýsingatækninotkun fyrirtækja 2025

Óáreiðanleg svör

Sama spurning getur skilað ólíkum svörum vegna þess að gervigreindina skortir samhengi. Hún styðst einungis við almenn gögn og hefur enga tengingu við innri kerfi. Svörin hljóma sannfærandi en eru oft hvorki rétt, samræmd né rekjanleg.

Svona byrjum við

Kannastu við þetta?

  • Persónuverndarfulltrúinn spyr spurninga sem enginn getur svarað.
  • Hver og einn borgar sína áskrift og enginn hefur yfirsýn yfir kostnaðinn.
  • Óvissa um hvort óhætt sé að setja viðkvæm gögn inn í gervigreind.

Hvað er APRÓ Vitinn?

Almenn gervigreind styðst við almennar upplýsingar. Vitinn byggir hins vegar á ykkar eigin gögnum og vinnureglum.

Öruggt

Vitinn keyrir í ykkar eigin skýjaumhverfi (AWS eða Azure) innan Evrópu. Öll gögn eru dulkóðuð, bæði við flutning og í geymslu, og aldrei notuð til að þjálfa gervigreindarmódel. Uppsetningin uppfyllir kröfur persónuverndarlaga (GDPR) og alþjóðlegra öryggisstaðla frá fyrsta degi.

Skoða nánar

Sveigjanlegt

Vitinn tengist ykkar innri kerfum og gögnum, svo svörin byggja á raunveruleika vinnustaðarins en ekki almennum upplýsingum af netinu. Þið veljið hvaða módel eru í boði, hvort sem það er Claude, ChatGPT, Gemini eða önnur, og getið bætt við eða skipt um módel eftir því sem tækninni fleygir fram.

Skoða nánar

Fullt eignarhald

Þið eigið allt: gögnin, lausnina og virðið sem gervigreindin skapar. Vitinn læsir ykkur ekki við einn birgja; ef betra módel kemur á markaðinn er einfalt að skipta yfir án þess að byrja upp á nýtt.

Sannreynd aðferðafræði

Árangursrík innleiðing gervigreindar byggir að 80% leyti á fólki og ferlum en aðeins 20% á tækninni sjálfri. Við hjálpum ykkur að byrja smátt, veitum vandaða þjálfun og mælum árangurinn jafnt og þétt.

Skoða nánar

Viðskiptavinir

Fyrirtæki og stofnanir sem nota Vitann í daglegum rekstri.

  • Verslun

    Eitt sameiginlegt vinnusvæði fyrir allt starfsfólk, tengt vöruupplýsingum, lagerstöðu og verklagsreglum.

    • Notkun um allt fyrirtækið á nokkrum mánuðum
    • Opin gervigreindartól leyst af hólmi með einu vinnusvæði
    • Vöruupplýsingar, lagerstaða og svör um verklag á sekúndum
  • Opinber stofnun

    Staðfest svör með heimild fyrir starfsfólk, og skólar spyrja eigin umsóknargögn á mannamáli.

    • Starfsfólk fær staðfest svör strax, alltaf með heimild
    • Skólar um allt land greina eigin umsóknargögn á mannamáli
    • Námsefni gert gagnvirkt fyrir nemendur og kennara
  • Tryggingar

    Vinnusvæði í eigin AWS-umhverfi innan ESB, og erindreki sem greinir tjónaskjöl beint í tjónaferlinu.

    • Eitt vinnusvæði í stað sundurlausra gervigreindartóla
    • Erindreki í tjónaferlinu: gögn mála fara ekki út fyrir ský VÍS
    • Í rekstri með vöktun og viðvörunum

Spurðu kerfin á mannamáli

Vitinn tengist Business Central, Microsoft 365, Jira, SharePoint og fleiri kerfum. Þú spyrð einnar spurningar og Vitinn sækir svarið í rétt kerfi, innan þess aðgangs sem þú hefur.

Skoða allar tengingar
APRÓ VitinnDæmi um fyrirspurnir

Óljóst hvar við stöndum.

Ljóst hvar við stöndum.

Hvernig stöndum við gagnvart fjárhagsáætlun í dag?

Fjárhagskerfi

Tekjur 6% yfir áætlun, launakostnaður 2% yfir.

2,1 m.kr.rekstrarniðurstaða yfir áætlun

Talaðu við fjárhagskerfið, verkbeiðnakerfið og gögnin þín.

Svörin fylgja þínum aðgangi. Tölurnar í dæmunum eru tilbúnar.

Hvernig fer þetta fram?

  1. Samtal um markmið

    Við förum yfir hvar gervigreind getur skilað mestu hjá ykkur og hvaða gögn og kerfi skipta máli.

  2. Uppsetning í ykkar umhverfi

    Við setjum Vitann upp í ykkar AWS- eða Azure-umhverfi og tengjum hann við ykkar innskráningu (single sign-on).

  3. Tengingar og innleiðing

    Við tengjum þau kerfi sem skipta máli og aðstoðum starfsfólk við fyrstu skrefin.

  4. Rekstur og þróun

    Við vöktum virkni, sjáum um uppfærslur og bætum við tengingum eftir því sem þarfirnar breytast.

Fast mánaðarverð, ekkert gjald á hvern notanda

Verðið tekur mið af ykkar umfangi og þörfum. Innifalið er uppsetning í ykkar skýjaumhverfi, eftirlit og uppfærslur og umsjón með innleiðingu. Rekstrarvakt er í boði sem viðbót. Ráðgjöf er sjálfstæð þjónusta - hún getur leitt til Vitans, en þarf þess ekki. Engin birgjalæsing: umhverfið og gögnin eru í ykkar eigu. Notkun módelanna greiðist beint til AWS eða Azure á ykkar eigin reikningi. Þið sjáið hana og stýrið henni í Vitanum.

Talaðu við okkur

Hafðu beint samband við okkur sem stöndum að þessu. Við svörum sjálf.

Eða skrifaðu okkur á apro@apro.is